Ráðning starfsmanna
Þegar starfsmaður er ráðinn til vinnu þarf að huga að mörgum þáttum. Góður undirbúningur og vandaður ráðningarsamningur getur komið í veg fyrir ágreining síðar.
Rétt er að hafa eftirfarandi þætti í huga:
- Er ástæða til að auglýsa starfið og hvaða reglur gilda þá um auglýsingar?
- Er rétt að leita til ráðningarfyrirtækis eða annarra sérhæfðra aðila á sviði mannauðsmála?
- Eru skorður við því í lögum hvern má ráða til starfans, t.d. vegna aldurs eða kröfu um menntun?
- Hvaða reglur gilda um ráðningarsamninga og efni þeirra?
- Á að gera tímabundinn eða ótímabundinn samning? Reynslutími?
- Hvaða kjarasamningur gildir sem lágmarkskjör í starfsgreininni?
- Hvaða reglur gilda í kjarasamningi um vinnutíma, vaktavinnu / eftirvinnu, yfirvinnu, neysluhlé og annað sem áhrif getur haft á skipulag vinnu og launakostnað?
- Hvernig er rétt að haga yfirborgun og hvaða liði er heimilt hafa sem hluta yfirborgunar?
- Hlunnindi?
- Sérstakar skyldur og trúnaður?
Hafa verður í huga að sérreglur gilda um ráðningu starfsmanna frá ríkjum utan EES, starfsmenn starfsmannaleiga og erlenda þjónustuverktaka.