hvað er á döfinni?
21. október 2026
21. október
kl. 16:00 - 18:00

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja
7. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja verður gefin út þann 21. október næstkomandi. Af því tilefni efna útgáfuaðilar, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, til útgáfuviðburðar í Kauphöllinni, Laugavegi 182 kl. 16:00. Bjarni Benediktsson opnar fundinn Lísbet Sigurðardóttir verkefnastjóri útgáfunnar kynnir helstu breytingar á leiðbeiningunum Marta Guðrún Blöndal lögmaður, stjórnarmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti flytur erindi Pallborðsumræður: Heiðar Guðjónsson stjórnarformaður Íslandsbanka, Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, Rut Gunnarsdóttir verkefnastjóri hjá KPMG og Þóranna Jónsdóttir formaður nefndar um stjórnarhætti. Baldur Thorlacius framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland stýrir umræðum. Boðið verður upp á léttar veitingar og tengslamyndun að fundi loknum. Viðburðurinn er opinn öllum en skráning nauðsynleg.

Algengar spurningar
Get ég fengið aðstoð frá lögmanni með starfsmannamál?
Já, ef þú ert félagsmaður getur þú fengið lögfræðilega aðstoð við túlkun kjarasamninga og stjórn starfsmannamála, sem hafa að gera með ráðningar, uppsagnir, vinnutíma, veikindarétt, orlof og fleira. Þú getur sent tölvupóst á sa@sa.is, hringt í síma 591 0000 eða haft beint samband við þinn tengilið á vinnumarkaðssviði SA.
Hvar sæki ég um félagsaðild?
Hvar finn ég ráðningarsamninga?
Undir Eyðublöð hér á vefnum geta félagsmenn nálgast fjölbreytt form af ráðningarsamningum ásamt fylgiskjölum bæði á íslensku og ensku. Félagsmenn geta einnig fengið aðstoð við gerð ráðningarsamninga hjá lögmönnum vinnumarkaðssviðs SA.
Þarf ég að semja um fjarvinnu?
Já, ef það er samkomulag um að starfsmaður sinni reglulega eða alfarið utan starfstöðvar félagsins, t.d. á heimili sínu þarf að semja um fjarvinnu. Félagsmenn SA geta nálgast nánari umfjöllun um fjarvinnu hér á vinnumarkaðsvefnum auk sniðmáts að samkomulagi um fjarvinnu á íslensku og ensku undir „Eyðublöð“.
Hvernig get ég komið upplýsingum á framfæri til ykkar?
Það er keppikefli Samtaka atvinnulífsins að skapa fyrirtækjum landsins sem best umhverfi til þess að vaxa og dafna. Við tökum því öllum ábendingum fagnandi, hvort sem það lítur að innra starfi okkar eða hagsmunamáli fyrir þitt fyrirtæki. Þér er velkomið að hafa samband í 591 0000 eða senda póst á sa@sa.is.