Orlof
Allt launafólk á rétt á orlofi, það er leyfi frá störfum í tiltekinn fjölda daga auk orlofslauna sem reiknast af öllum launum.
Reglur um orlof er að finna í orlofslögum og kjarasamningum. Orlofslög kveða m.a. á um lágmarksorlof, ákvörðun orlofstöku og útgreiðslu orlofslauna. Kjarasamningar hafa að geyma ákvæði um orlof umfram lágmarksorlof, hvernig það skiptist í sumar- og vetrarorlof og veikindi í orlofi.
Atvinnurekendur þurfa að gæta að ýmsum þáttum þegar kemur að orlofi, s.s:
- Halda utan um starfstíma starfsmanns og eftir atvikum starfstíma í viðkomandi starfsgrein og vita hvenær kemur til hækkunar á orlofsrétti starfsmanns.
- Tryggja að orlofslaun séu rétt reiknuð og að þau komi til greiðslu við orlofstöku.
- Halda utan um orlofstöku starfsmanna. Deilur koma upp um fjölda úttekinna daga, sér í lagi við starfslok.
- Ef orlofslaun eiga að vera innifalin í einhverjum sérgreiðslum / eingreiðslum þá er mikilvægt að tilgreina skriflega að greiðslan innifeli orlof.