1 MIN
Ísland þarf að mæta fyrr til leiks í Brussel
Íslensk fyrirtæki vilja ná árangri í loftslagsmálum en kalla eftir orku, fyrirsjáanleika og því að tekið sé tillit til íslenskra aðstæðna í evrópsku regluverki. Það var rauði þráðurinn á fjölsóttum Umhverfisdegi atvinnulífsins.
Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram í ellefta sinn síðasta þriðjudag á Hótel Reykjavík Grand undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Dagurinn var vel sóttur og ánægjulegt að sjá þann mikla áhuga sem íslensk fyrirtæki sýna málaflokknum, vilja þeirra til að fylgjast með þróun mála og taka virkan þátt í umræðunni.
Í ár beindum við sjónum að sérstöðu Íslands og mikilvægi öflugrar og framsýnnar hagsmunagæslu fyrir íslenskt atvinnulíf, með það að markmiði að loftslagsárangur og samkeppnishæfni fari saman.
Á dagskrá voru meðal annars niðurstöður nýrrar könnunar Gallup meðal félagsmanna SA og aðildarsamtaka, pallborðsumræður um íslenska hagsmuni í evrópsku regluverki og afhending Umhverfisverðlauna atvinnulífsins.
Að lokinni sameiginlegri dagskrá voru þrjár málstofur þar sem fjallað var um:
- Sérstöðu Íslands í ETS-kerfinu
- Innleiðingu umbúðaregluverks ESB (PPWR) í íslensku samhengi
- Íslenska sérstöðu í orkumálum
Þvert á dagskrána mátti greina sömu skilaboðin: Sömu reglur hafa ekki sömu áhrif alls staðar, Ísland þarf að koma fyrr að borðinu þegar reglur eru mótaðar í Brussel og án aukinnar orku verða engin orkuskipti.

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, kynnti í opnunarávarpi sínu niðurstöður nýrrar Gallup-könnunar. Tæp 38% fyrirtækja eru nú jákvæð gagnvart markmiði Íslands um kolefnishlutleysi árið 2040, samanborið við 49% árið 2024, og hlutfall neikvæðra hefur hækkað úr 30% í tæp 37%.
Um 56% fyrirtækja vilja breyta miklu til að minnka áhrif sín á umhverfi og loftslag, en hlutfallið var 65% árið 2024.
Viljinn er enn til staðar, en hann er minni en hann var.
Aðeins 12% fyrirtækja telja markmið og aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum nægilega skýr og fyrirsjáanleg fyrir langtímafjárfestingar, en nærri 60% telja svo ekki vera. Af þeim fyrirtækjum sem frestað hafa loftslagsverkefnum nefna helst háa vexti (47%) og óvissu í stefnu og regluverki (35%) en „loftslagsverkefni ráðast af sömu skilyrðum og aðrar fjárfestingar: stöðugleika, fjármagnskostnaði og trú á að forsendurnar haldi,“ sagði Bjarni.
Tvö efstu atriðin sem fyrirtækin vilja að stjórnvöld setji í forgang snúa að orku: nægt framboð og afhendingaröryggi raforku (58%) og hraðari uppbygging orkuinnviða (45%). Tæp 78% fyrirtækja telja lítið tillit tekið til sérstöðu Íslands í evrópsku og alþjóðlegu loftslagsregluverki, einkum landfræðilegrar legu og fjarlægðar frá mörkuðum. Um 44% telja regluverkið veikja samkeppnishæfni sína og af þeim nefna 83% ETS-kerfið. „Sömu reglur tryggja ekki sjálfkrafa jöfn samkeppnisskilyrði, og eins og við sjáum til dæmis í ETS-kerfinu þá erum við verr sett heldur en aðrar þjóðir,“ sagði Bjarni. „Markmið loftslagsregluverks er að draga úr losun, ekki að innheimta gjöld.“
Hann lagði áherslu á að stuðningur við EES-samninginn og krafa um tillit til sérstöðu Íslands stangist ekki á. Leiðin væri að koma fyrr að mótun tillagna, leggja fram traust gögn um íslenskar aðstæður og innleiða EES-reglur með skilvirkum hætti. „Sérstaða Íslands er staðreynd. Hvort hún verður samkeppnisforskot eða hindrun ræðst af þeim ákvörðunum sem við tökum.“

Frá Íslandi til Brussel: „Höfum við kannski verið svolítið værukær?“
Í pallborði undir stjórn Lilju Bjarkar Guðmundsdóttur, yfirlögfræðings Samtaka iðnaðarins, voru þátttakendur sammála um að hagsmunagæsla Íslands í Brussel þyrfti að hefjast mun fyrr og að hún væri ekki verkefni stjórnvalda einna.
Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, sagði EES-samninginn oft hafa skort málsvara og að hagsmunagæslan þyrfti að færast miklu framar í ferlinu. Nú bíða 500–600 gerðir upptöku í EES-samninginn, en fjöldi skráðra gerða hefur farið úr 400–500 á ári fram til 2014 í 800 árið 2025.
Gunnar Þór sagði nýja löggjöf ESB, sem ætlað er að verja innri markaðinn í viðskiptastríði stórveldanna, ríma illa við EES-samninginn þar sem Ísland stendur utan tollabandalagsins. „Það er erfiðara og erfiðara að viðhalda EES-samningnum og við þurfum að vera á tánum.“
Álfheiður Ágústsdóttir, aðstoðarforstjóri Travel Connect og fyrrverandi forstjóri Elkem Ísland, sagði forskot Íslands ekki sjálfgefið og að hagsmunir landsins færu ekki alltaf saman við hagsmuni stærstu ríkja ESB.
Við þurfum í rauninni bara að spila sókn, sem er líklega okkar besta vörn.
Reynslan af verndarráðstöfunum ESB vegna kísiljárns hefði kennt að atvinnulífið þyrfti að vera fyrr á ferðinni, treysta ekki á að aðrar þjóðir gættu hagsmuna Íslands og upplýsa stjórnvöld um það sem gæti valdið fyrirtækjum alvarlegum vanda.
Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, spurði hver væri málsvari EES-regluverksins. „Erum við það upptekin af okkar sérstöðu að við gleymum því hvað við eigum sameiginlegt með Evrópu? Höfum við kannski verið svolítið værukær?“ Hún benti á að nú, árið 2026, væri verið að innleiða orkutilskipunina RED II frá 2018, þótt arftaki hennar frá 2023, sem hraðar leyfisveitingum, væri þegar tekinn gildi í Evrópu. „Við getum auðvitað gert betur og við verðum að gera betur.“

Icelandair Umhverfisfyrirtæki ársins í fyrsta sinn
Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, afhenti Umhverfisverðlaun atvinnulífsins og hlaut Icelandair nafnbótina Umhverfisfyrirtæki ársins 2026. Frá árinu 2019 hefur losun Icelandair á hvern tonnkílómetra dregist saman um 22% og heildarlosun um 10%, þótt farþegum hafi fjölgað um 15%. Félagið hefur fjárfest fyrir yfir einn milljarð Bandaríkjadala í nýjum flugvélum sem nota 20–30% minna eldsneyti en eldri gerðir.
„Við lítum á þessi verðlaun ekki sem endapunkt heldur hvatningu til að halda áfram,“ sagði Guðrún Helga.
Elkem Ísland og Ístak voru einnig tilnefnd meðal þriggja efstu fyrirtækja til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins. Elkem fyrir að nota úrgangstimbur í stað hluta kola við framleiðslu kísiljárns á Grundartanga og Ístak fyrir rafvæðingu vinnuvéla og efnisvinnslu í Stapafelli.
Í dómnefnd sátu Jóna Bjarnadóttir frá Landsvirkjun, sem var formaður, Sigríður Ósk Bjarnadóttir frá BM Vallá og María Rúnarsdóttir frá Heimum.

„Við biðjum bara um jafnan leikvöll“
Í málstofu um ETS-kerfið, undir fundarstjórn Maríu Rutar Ágústsdóttur hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, flutti Kristinn Már Reynisson, lögfræðingur SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, erindið Með vindinn í fangið – loftlagsreglur á ójöfnum grundvelli.
Í erindi sínu fjallaði Kristinn um áhrif ETS-kerfisins á flug og sjóflutninga, ásamt því að fara yfir þá vinnu sem fram hefur farið hjá SA, SAF og SVÞ í samvinnu við íslensk stjórnvöld við að koma sjónarmiðum íslenskra fyrirtækja á framfæri við ESB.
Þá deildi hann lykilniðurstöðum úr tveimur greiningum Det Norske Veritas (DNV) um sjóflutninga og úr greiningu Hagrannsókna sem unnin var fyrir flugið. Þær greiningar sem farið var yfir sýna þá sérstöðu sem Ísland býr við og hvernig sú sérstaða leiðir af sér skekkju í núverandi útfærslu ETS-kerfsins.
Til að mynda, varðandi sjóflutninga, sýna greiningar DNV að vindur og ölduhæð krefjast um 22% meiri orku við Ísland samanborið við um 5% á Miðjarðarhafi. Greiningarnar sýna enn fremur að afleiðingar veðuraðstæðna og fjarlægðar valda því að ETS-kostnaður leggst þyngra á sjóflutninga til og frá Íslandi með tilheyrandi áhrifum á innflutning og útflutning. Sama má sjá í fluginu en greining Hagrannsókna sýna fram á að þjóðhagslegt mikilvægi flugs og ferðaþjónustu er meira en í samanburðarlöndum og því veldur fjarlægð Íslands því að ETS kostnaður leggst einnig þyngra á flug og íslenska samkeppnishæfni.
Kristinn Már varaði við því að skekkjan skapaði hvata til að sleppa Íslandi. „Ef skekkjan verður ekki leiðrétt getur kerfið í núverandi mynd leitt af sér aukna losun. Það er nákvæmlega öfugt við tilganginn.“
Tilgangur ETS-kerfisins er ekki síst að beita hagrænum hvötum til að draga úr losun. Það hafa íslensk fyrirtæki gert en eftir stendur skekkjan sem fjarlægðin og veðrið veldur. Og benti Kristinn því á að ekkert gjaldakerfi eða hvatar færa Ísland nær meginlandinu né bæta veðurskilyrði sem Íslendingar búa við.
Kristinn endaði svo erindi sitt á að benda á að þessar niðurstöður hafi verið kynntar fyrir fulltrúum framkvæmdarstjórnar ESB í mars á þessu ári eða 4 mánuðum áður en drög að endurskoðun ETS-kerfisins voru birt. „Við erum ekki á móti ETS og biðjum ekki um undanþágur. Við biðjum bara um jafnan leikvöll,“ sagði Kristinn.
Áhugasamir geta kynnt sér greiningarnar hér: DNV (sjóflutningar) og Hagrannsóknir (flug).
Næst fór Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri loftslagsmála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, yfir tillögu framkvæmdastjórnar ESB um endurskoðun ETS sem lögð var fram í júlí á þessu ári. Tillagan er viðamikil en Magnús fór yfir helstu breytingar, sér í lagi þær sem snerta flug og sjóflutninga. Þá sagði hann frá starfshópi um endurskoðunina og kynningarfundi á vegum hans um málið.
Þá hvatti Magnús Örn hagaðila til að senda inn umsagnir í samráðsgátt ESB, Have your say, sem er opin til 3. nóvember.
Málstofunni lauk svo með pallborðsumræðum þar sem Kristinn Már ræddi við Guðrúnu Helgu Heiðarsdóttur hjá Icelandair, Öglu Huld Þórarinsdóttur hjá Eimskip, Unu Jóhannsdóttur hjá utanríkisráðuneytinu og áðurnefndan Magnús Örn. Fyrirsjáanleiki, öflug hagsmunagæsla og traustar greiningar voru meðal helstu áhersluatriða í umræðunum um áhrif ETS-kerfisins á íslenskt atvinnulíf. Jafnframt kom skýrt fram að öflug samvinna stjórnvalda, atvinnulífs og hagsmunasamtaka væri lykilatriði í því að koma sérstöðu Íslands á framfæri gagnvart Evrópusambandinu.

Umbúðir eru ekki bara úrgangur
Í málstofu um nýtt umbúðaregluverk ESB, PPWR, undir fundarstjórn Steinars Þórs Ólafssonar, sérfræðings í samskiptum og miðlun hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, lagði Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri hjá Samtökum iðnaðarins, áherslu á að innleiðingin tæki mið af íslenskum aðstæðum og að kostnaður stæði í eðlilegu hlutfalli við umhverfisávinning. Áhrifamat á fjölnotakerfi fyrir drykkjarumbúðir hér á landi bendir til þess að kostnaðurinn sé óforsvaranlegur jafnvel í jákvæðustu sviðsmynd, enda virðist umhverfisávinningurinn takmarkaður eða enginn.
Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá SFS, sagði endurnotkunarkröfur skapa verulegar áskoranir fyrir sjávarútveginn vegna langra flutningsleiða. Ferskfiskkassar væru mikilvægur hluti af kælikeðjunni og endurnotkunarmarkmið vektu spurningar um matvælaöryggi, bakflutninga og hvort reglurnar gætu í heild aukið matarsóun og kolefnisspor.
Í pallborði með Ingólfi Friðrikssyni hjá utanríkisráðuneytinu, Hafsteini Snæland Grétarssyni hjá Danól og Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, var áréttað að umbúðir vernduðu vörur og drægju úr matarsóun. Forðast þyrfti tvöfalt skilakerfi sem gæti dregið úr þeim árangri sem þegar hefur náðst. Fram kom að viðræður um aðlögun innan EES gætu orðið erfiðar og að fyrirtæki þyrftu að vera undirbúin, þótt óljóst væri hvenær reglurnar yrðu teknar upp í EES-samninginn. Samtalið leiddi í ljós ríkan vilja stjórnvalda til að vinna náið með atvinnulífinu að innleiðingunni.

Mun Ísland njóta forskots vegna notkunar endurnýjanlegrar orku?
Í málstofu um orkumál, undir fundarstjórn Aðalheiðar Snæbjarnardóttur, forstöðumanni sjálfbærni hjá Landsbankanum, kom fram að forskot Íslands í hreinni orku er ekki lengur sjálfgefið.
Erla Sigríður Gestsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu orkumála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, benti á að um 70% raforkuframleiðslu ESB kæmu nú frá hreinum orkugjöfum að kjarnorku meðtalinni, á móti nánast 100% hér á landi. Forskotið væri þó enn mikið í heildarorkunotkun, um 79% á Íslandi á móti um 25% í ESB. „Það dugar ekki að segja að Ísland sé sérstakt. Við þurfum að greina áhrifin,“ sagði Erla, og nefndi að vönduð greining hefði skilað Íslandi kröfu um 0,24% árlegan orkusparnað í stað 0,8% við aðlögun að orkunýtnitilskipun ESB. „Íslensk græn orka getur orðið verðmætari. Það ræðst líka af því hvernig við höldum á spilunum.“
Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, sagði drátt á innleiðingu evrópsks regluverks í orkumálum, sem er í hraðri þróun, þegar farinn að að ógna samkeppnisstöðu Íslands. „Við getum ekki bara verið róleg og gert ráð fyrir að EES-samningurinn tryggi okkar hagsmuni til framtíðar.“ Ný gerð um einkunnakerfi gagnavera krefst þess að upprunaábyrgðir tengist framleiðslu á samtengdu verðsvæði, og hefur framkvæmdastjórn ESB staðfest við Samorku og stjórnvöld að það útiloki Ísland frá þessum markaði. Tekjur af sölu upprunaábyrgða námu tæpum 7,4 milljörðum króna árið 2025 og búist er við að gagnaversiðnaðurinn vaxi átta- til tífalt til 2035. Ráðuneytið vinnur að lausn í samtali við framkvæmdastjórnina.
Kristín Linda nefndi einnig kröfu iðnaðarhraðals ESB um evrópskan uppruna, svokallað Made in EU, þar sem lagaleg staða Íslands er óljós þar til gerðin verður tekin upp í EES-samninginn. „Hæg innleiðing skapar óvissu og hefur áhrif á okkar samkeppnishæfni,“ sagði hún.
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá Samtökum iðnaðarins, fjallaði um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju. Í erindi hennar kom fram að álver og kísilver hefðu staðið undir 17% af útflutningstekjum Íslands árið 2025 og samkeppnishæft raforkuverð sé grundvöllur samkeppnishæfni stórnotenda sem keppa á alþjóðamörkuðum. Íslensk álver og kísilver framleiði vörur með eitt minnsta kolefnisspor í heimi og aðgangur þeirra að endurnýjanlegri orku sé því eitt stærsta framlag Íslands til loftlagsmála.
Guðný fór yfir að nýjustu tölur sýni að ESB þurfi að mæta yfir 85% af þörf sinni fyrir frumframleitt ál með innflutningi og Ísland standi undir fjórðungi þess áls sem sé frumframleitt í Evrópu. Guðný fór yfir aukið framboð álframleiðslu í heiminum, áherslu ESB á að styðja við framleiðslu innan Evrópu og áskoranir Evrópuregluverks sem sé ekki hannað út frá íslenskum raforkumarkaði.
Í erindi hennar kom fram mikilvægi þess að íslensk framleiðsla falli innan regluverks ESB um iðnaðarhraðal (Industrial Accelerator Act) og mikilvægt sé að losun af orku sem nýtt er í staðbundnum iðnaði verði hluti af reglugerð ESB um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM) þannig að staðbundinn iðnaður sem noti endurnýjanlega orku njóti góðs af því. Fríverslunarsamningar ESB við Indland og Indónesíu, sala upprunaábyrgða til iðnaðar sem noti jarðefnaeldsneyti og CBAM í óbreyttri mynd geti haft þær afleiðingar að stóriðja sem losar í heildina meira sé í betri stöðu en stóriðja á Íslandi. Sala upprunaábyrgða til stóriðju og gagnavera sem noti jarðefnaeldsneyti hafi forskotið af íslenskum stórnotendum og dragi tæpast úr losun gróðurhúsalofttegunda.
EES-samningurinn sé lífæð landsins og hagsmunagæsla snemma í ferlinu skipti sköpum til að tryggja samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Í pallborði sátu Kristín Linda, Jón Ásgeirsson frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Ríkarður Ríkarðsson frá Landsneti, Hólmfríður Kristjánsdóttir frá Norðuráli og Eymundur Sigurðsson frá Lotu. Samhljómur var um að EES-samningurinn væri mikilvægasti samningur landsins, en að regluverkið væri ekki samið út frá sérstöðu Íslands. Orkugeirinn kallaði eftir hraðari upptöku gerða á sviði orkumála, aðlagaðra að íslenskum aðstæðum, á meðan fulltrúar stórnotenda lýstu því að standa yrði vörð um samkeppnishæfni stórnotenda. Bent var á að græn orka ein og sér dygði ekki lengur til að laða fyrirtæki til landsins né tryggði notkun endurnýjanlegar orku viðskipti, heldur réðu verð, stöðugleiki og hraði uppbyggingar mestu.

Sameiginlegt verkefni
„Ísland skortir ekki tækifæri. Við þurfum að skapa skilyrði til að nýta þau, þannig að loftslagsárangur og samkeppnishæfni fari saman,“ sagði Bjarni Benediktsson í lok opnunarávarps síns.
Umhverfisdagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SAF, Samorku, SFF, SFS,SI og SVÞ.