15. júní 2026

Sérstaða Íslands í sjóflutningum kallar á öfluga hagsmunagæslu

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Sérstaða Íslands í sjóflutningum kallar á öfluga hagsmunagæslu

Sérstaða Íslands í sjóflutningum kallar á öfluga hagsmunagæslu

Greiningar alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins Det Norske Veritas (DNV) sýna að landfræðileg lega Íslands og krefjandi veðurskilyrði á Norður-Atlantshafi leiða til aukinnar orkunotkunar og hærri kostnaðar vegna viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS). Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að íslensk stjórnvöld og hagsmunasamtök atvinnulífsins vinni saman að því að tryggja að tekið sé tillit til sérstöðu Íslands við mótun evrópsks loftslagsregluverks.

Ísland er nær alfarið háð sjóflutningum þegar kemur að vöruflutningum til og frá landinu. Um 99% vöruflutninga fara fram sjóleiðis og ólíkt ríkjum á meginlandi Evrópu hafa íslensk fyrirtæki ekki raunhæfa staðgönguvalkosti á borð við járnbrautar- eða vegaflutninga milli landa. Áhrif ETS-kerfisins geta því orðið hlutfallslega þyngri hér á landi en annars staðar innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Greiningar DNV staðfesta kostnaðarhalla

Á árinu 2026 hefur DNV unnið tvær sjálfstæðar greiningar á áhrifum siglingaaðstæðna á orkunotkun og kostnað sjóflutninga til Íslands.

Sú fyrri, sem unnin var fyrir íslensk stjórnvöld, sýnir að skip sem sigla til Íslands þurfa að jafnaði meiri orku vegna vinds og öldu en sambærileg skip á siglingaleiðum innan Evrópu.

Í framhaldi af þeirri vinnu vann DNV viðbótargreiningu fyrir Samtök atvinnulífsins (SA) og SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu, þar sem metið var hvernig aukin orkuþörf og lengri siglingaleiðir hafa áhrif á kostnað vegna ETS-kerfisins.

Niðurstöðurnar sýna að ETS-kostnaður á hverja ferð á leiðinni Reykjavík–Rotterdam er að minnsta kosti 50% hærri en á þeim evrópsku samanburðarleiðum sem greiningin tekur til, og í sumum samanburðardæmum meira en tvöfalt hærri.

Greiningarnar sýna þannig með mælanlegum hætti hvernig lengri siglingaleiðir og krefjandi veðurskilyrði leiða til aukinnar eldsneytisnotkunar, losunar og kostnaðar. Þessar aðstæður ráðast að verulegu leyti af landfræðilegri legu Íslands og veðurfari á Norður-Atlantshafi, þáttum sem íslensk fyrirtæki geta ekki breytt.

Sameiginleg hagsmunagæsla skiptir sköpum

ETS-kerfið hefur verið mikilvægt hagsmunamál SA á árinu. SA hafa ásamt SVÞ og SAF unnið markvisst að því að koma sjónarmiðum íslensks atvinnulífs á framfæri gagnvart Evrópusambandinu með umsögnum, greiningarvinnu og fundum með lykilaðilum í Brussel.

Í mars síðastliðnum fóru fulltrúar SA, SVÞ og SAF ásamt Icelandair og Eimskip til Brussel þar sem fundað var með fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB. Þar var lögð áhersla á áhrif ETS-kerfisins á íslenskt atvinnulíf og mikilvægi þess að tekið verði mið af landfræðilegri sérstöðu landsins.

Niðurstöður DNV-greininganna styrkja grundvöll áframhaldandi hagsmunagæslu. Mikilvægt er að íslensk stjórnvöld og hagsmunasamtök atvinnulífsins haldi áfram að koma sérstöðu Íslands á framfæri gagnvart Evrópusambandinu, enda verður landfræðilegri legu landsins og veðuraðstæðum á Norður-Atlantshafi ekki breytt.

Markmiðið er að tryggja að tekið sé tillit til þessara aðstæðna svo íslensk fyrirtæki geti staðið jafnfætis erlendum samkeppnisaðilum og loftslagsárangur og samkeppnishæfni fari saman.

Frekari umfjöllun

Samtök atvinnulífsins