27. Okt

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026

Hero icon

dags

27. október 2026

tími

kl. 13:00 - 15:15

staður

Hótel Reykjavik Grand

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Kastljósinu verður beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi öflugrar og framsýnnar hagsmunagæslu fyrir íslenskt atvinnulíf með það að markmiði að loftslagsárangur og samkeppnishæfni fari saman.

Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavik Grand og stendur yfir frá kl. 13:00 - 15:15.
Húsið opnar kl. 12:30. Skráning fer fram hér eða í skráningarforminu hér að neðan.

Léttar veitingar og tengslamyndun að dagskrá lokinni.


Dagskrá:
Kristjana Arnarsdóttir fer með fundarstjórn.

Opnunarávarp
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Frá Íslandi til Brussel – sérstaða, hagsmunir og áhrif
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrir samtali.

  • Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík.  
  • Álfheiður Ágústsdóttir, aðstoðarforstjóri Travel Connect. 
  • Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets. 

Umhverfisfyrirtæki ársins
Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, afhendir verðlaunin.

Dómnefnd hefur valið þrjú fyrirtæki sem sköruðu fram úr meðal þeirra tilnefninga sem bárust í ár:

  • Ístak
  • Icelandair
  • Elkem

Stutt kaffihlé


Málstofur – velja þarf málstofu við skráningu

1. Sérstaða Íslands í ETS-kerfinu

María Rut Ágústsdóttir, verkefnastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, fer með fundarstjórn.

Með vindinn í fangið - Loftslagsreglur á ójöfnum leikvelli
Kristinn Már Reynisson, lögfræðingur SVÞ – Samtaka verslunar- og þjónustu.

ETS kerfið og Ísland
Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri á skrifstofu loftslagsmála hjá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu.

Pallborðsumræður
Kristinn Már stýrir samtali.

  • Guðrún Helga Heiðarsdóttir, sjálfbærnistjóri Icelandair. 
  • Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri á skrifstofu loftslagsmála hjá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.  
  • Agla Huld Þórarinsdóttir, sjálfbærnistjóri Eimskip. 
  • Una Jóhannsdóttir, varaskrifstofustjóri á viðskiptaskrifstofu Utanríkisráðuneytisins. 

2. PPWR – innleiðing umbúðaregluverks ESB í íslensku samhengi
Steinar Þór Ólafsson, sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, fer með fundarstjórn.

Áhrif og áskoranir PPWR
Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins.

Pallborðsumræður
Sigurður Helgi stýrir samtali.

  • Ingólfur Friðriksson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu Utanríkisráðuneytisins. 
  • Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri Danól. 
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. 
  • Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. 
    Umræður og spurningar úr sal að pallborðsumræðum loknum.     

3. Íslensk sérstaða í orkumálum
Aðalheiður Snæbjarnardóttir, forstöðumaður sjálfbærni hjá Landsbankanum, fer með fundarstjórn.

Evrópsk orkustefna á tímamótum – tækifæri og áskoranir fyrir Ísland
Erla Sigríður Gestsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu orkumála hjá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og Head of Delegation EEA-EFTA Working Group Energy.

Tryggjum samkeppnishæfni til framtíðar
Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.

Sérstaða Íslands og samkeppnishæfni stóriðju
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá Samtökum iðnaðarins.

Pallborðsumræður
Aðalheiður Snæbjarnardóttir, forstöðumaður sjálfbærni hjá Landsbankanum, stýrir samtali.

  • Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.
  • Jón Ásgeirsson, skrifstofustjóri á skrifstofu orkumála hjá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu.  
  • Ríkarður Ríkarðsson, aðstoðarforstjóri Landsnets. 
  • Hólmfríður Kristjánsdóttir, lögmaður Norðuráls. 
  • Eymundur Sigurðsson, rafmagnsverkfræðingur hjá Lotu

Dagurinn sameiginlegt verkefni SA, SAF, Samorku, SFF, SFS, SI og SVÞ.

Skráðu þig hér að neðan