28. mars 2025

Jón Ólafur býður sig fram til formanns SA

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Jón Ólafur býður sig fram til formanns SA

Aðalfundur fer fram 15. maí

Jón Ólafur Halldórsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns Samtaka atvinnulífisins en aðalfundur samtakanna verður haldinn 15. maí nk.

Jón Ólafur hefur starfað í þágu atvinnulífsins allt frá árinu 2015 þegar hann tók sæti í stjórn Samtaka atvinnulífsins en hann hefur verið í framkvæmdastjórn samtakanna allt frá árinu 2018. Jón þekkir vel til þess að starfa sem formaður í Húsi atvinnulífsins en hann sat í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu frá árinu 2017 og var formaður SVÞ frá 2019 til 2025 eða um sex ára skeið.

Jón Ólafur er véltæknifræðingur að mennt en hefur jafnframt lokið MBA námi frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál fyrirtækja og hann hefur einnig lokið MS námi í viðskiptafræði frá sama skóla með áherslu á stefnumörkun og stjórnun fyrirtækja. Ennfremur hefur Jón Ólafur lokið AMP námi við IESE viðskiptaskólann í Bacelona.

Jón Ólafur hefur undanfarin 30 ár unnið við stjórnunarstörf í íslensku atvinnulífi. Hann var forstjóri Olís í sjö ár og starfaði hjá félaginu í 27 ár. Frá árinu 2021 hefur Jón Ólafur sinnt ýmsum ráðgjafa- og stjórnarstörfum.

Jón Ólafur er fæddur 1962, kvæntur Guðrúnu Atladóttur innanhússarkitekt og eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn.

„Með því að bjóða mig fram sem formaður Samtaka atvinnulífsins er ég að bjóða fram krafta mína í þágu verðmætasköpunar, viðskiptafrelsis, einkaframtaks og alþjóðaviðskipta sem allt eru undirstöðuþættir velgengni í íslensku atvinnulífi. Samtök atvinnulífsins eru málsvari fyrirtækja og hlutverk þeirra er að hafa mótandi áhrif á starfsumhverfi atvinnulífsins, stuðla að samkeppnishæfum og arðsömum atvinnurekstri. Eitt af meginverkefnum samtakanna eru samskipti við stéttarfélög og gerð kjarasamninga fyrir hönd aðildarfyrirtækja en ég hef um árabil verið talsmaður þess að forsvarsmenn fyrirtækja taki virkan þátt í þeim,“ segir Jón Ólafur.

Tengt frétt

Eyjólfur Árni hættir sem formaður
Lesa meira

Samtök atvinnulífsins