dags
21. október 2026
tími
kl. 16:00 - 18:00
staður
Kauphöllin, Laugavegi 182
7. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja verður gefin út þann 21. október næstkomandi. Af því tilefni efna útgáfuaðilar, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, til útgáfuviðburðar í Kauphöllinni, Laugavegi 182 kl. 16:00.
- Bjarni Benediktsson opnar fundinn
- Lísbet Sigurðardóttir verkefnastjóri útgáfunnar kynnir helstu breytingar á leiðbeiningunum
- Marta Guðrún Blöndal lögmaður, stjórnarmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti flytur erindi
- Pallborðsumræður: Heiðar Guðjónsson stjórnarformaður Íslandsbanka, Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, Rut Gunnarsdóttir verkefnastjóri hjá KPMG og Þóranna Jónsdóttir formaður nefndar um stjórnarhætti. Baldur Thorlacius framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland stýrir umræðum.
Boðið verður upp á léttar veitingar og tengslamyndun að fundi loknum.
Viðburðurinn er opinn öllum en skráning nauðsynleg.
