dags
14. nóvember 2024
tími
kl. 09:00-11:00
staður
Hótel Reykjavík Natura
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu í samstarfi við Samtök atvinnulífsins standa fyrir morgunfundi fimmtudaginn 14. nóvember undir yfirskriftinni Leiðir til að lækka vexti .
Dagskrá fundarins:
Erindi:
Gunnar Haraldsson hagfræðingur mun kynna niðurstöður úttektar ráðgjafafyrirtækisins Intellecon um þróun starfsumhverfis fjármálaþjónustu á Íslandi undanfarin ár, ásamt skattspori fjármálageirans og ræðir niðurstöðurnar í samhengi við yfirskrift fundarins.
Benedikt Gíslason , bankastjóri Arion banka.
Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri.
Pallborðsumræður með frambjóðendum:
Fulltrúar stjórnmálaflokka sem eru í framboði til Alþingis munu jafnframt ræða sína framtíðarsýn fyrir fjármálaþjónustu hér á landi næstu árin.
Marínó Örn Tryggvason , hjá Arma Advisors og fyrrverandi forstjóri Kviku banka, mun stýra pallborðsumræðunum.
Heiðrún Jónsdóttir , framkvæmdastjóri SFF, verður fundarstjóri.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 14. nóvember frá klukkan 9:00-11:00 á Hótel Reykjavík Natura á Nauthólsvegi 52. Léttar morgunveitingar frá klukkan 8:30. Fundurinn er öllum opinn.
Skráning í fullum gangi á heimasíðu SFF.