14. Feb

Menntadagur atvinnulífsins 2024

Hero icon

dags

14. febrúar 2024

tími

kl. 09:00-10:30

staður

Harpa

Menntadagur atvinnulífsins er árlegur viðburður þar sem menntamál eru í brennidepli. Fundurinn er haldinn í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar nk. kl. 09:00 - 10:30. Yfirskrift menntadagsins í ár er Göngum í takt: Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins?

Á fundinum kynnum við uppfærðar niðurstöður könnunar Gallup á eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar í því augnamiði að skilgreina nauðsynlegar aðgerðir svo vinnuaflsskortur hamli ekki vexti í atvinnulífinu. Rödd atvinnulífsins fær að heyrast sem fyrr og ráðherrar málaflokksins mæta í umræður þar sem menntakerfið er krufið með tilliti til færniþarfar á vinnumarkaði.

Þá eru hin árlegu menntaverðlaun atvinnulífsins veitt í tveimur flokkum af Forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku , Samtaka ferðaþjónustunnar , Samtaka fjármálafyrirtækja , Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi , Samtaka iðnaðarins , Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins .

Fundinum er einnig streymt hér .

Hér má horfa á Menntadag atvinnulífsins 2023:

Skráning á viðburð