dags
05. janúar 2023
tími
kl. 09:00-10:00
staður
Streymi & Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35
Metnaðarfullt fræðslustarf fyrirtækja - lykill að framsæknu atvinnulífi.
Menntamorgnar atvinnulífsins fara af stað aftur 5. janúar næstkomandi 09:00 - 10:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Boðið verður upp á morgunkaffi. Menntamorgnar eru samstarfsverkefni SA og aðildarsamtaka.
Fundurinn ber yfirskriftina Metnaðarfullt fræðslustarf fyrirtækja - lykill að framsæknu atvinnulífi.
Dagskrá
- Skrautfjöður eða strategískt markmið? Allt um tilnefningar til menntaverðlauna atvinnulífsins – Ásdís Eir Símonardóttir mannauðsstjóri Lucinity og forseti Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi
- Menntasprotinn okkar – kærkomin viðurkenning og hvatning - Knútur Rafn Ármann eigandi og framkvæmdastjóri Friðheima
- Menntaverðlaunin komin í hús – við settum okkur markmið – Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri Samkaupa
Fundarstjóri er Kristín Lúðvíksdóttir, sérfræðingur hjá SFF.
Menntamorgunninn er hugsaður sem hvatning fyrir fyrirtæki og upptaktur að Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram 14. febrúar nk.
Smellið hér til að horfa á streymið:
Opið er fyrir tilnefningar til Menntaverðlauna atvinnulífsins og hvetjum við öll fyrirtæki sem uppfylla skilyrðin að tilnefna sig hér.