1 MIN
Verður verðmætasköpun í öndvegi á nýju kjörtímabili?
Nýafstaðnar alþingiskosningar fjölluðu að miklu leyti um efnahagslegan stöðugleika og jafnvægi í ríkisfjármálum og fram kom í kosningabaráttu flokkanna sem nú sitja á alþingi að þeir vilja ná jafnvægi í ríkisrekstri. Það er mikilvægt að þau loforð séu efnd, til að skjóta styrkari stoðum undir stöðugleikann.
En stöðugleiki einn og sér er ekki nóg. Við verðum líka að huga að verðmætasköpun. Til þess að hún dafni þá verður Ísland að vera samkeppnishæft. Verðmætasköpun í atvinnulífinu stendur undir velferð samfélagsins. Við megum aldrei missa sjónar á þeim verðmætum sem öflugt atvinnulíf færir okkur.
Hagkerfið hefur kólnað, greiningar gera ekki ráð fyrir hagvexti í ár og sýna samdrátt í bæði landsframleiðslu og framleiðni á fyrri hluta ársins 2024. Horft fram á veginn er gert ráð fyrir því að atvinnuleysi aukist og tölurnar eru í takt við viðhorf stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins, hagnaður í viðskiptahagkerfinu dróst saman í fyrra og fleiri en færri stjórnendur stærri fyrirtækja gera ráð fyrir sömu þróun á þessu ári sem rétt er að ljúka.
Til lengri tíma litið er Ísland í öfundsverðri stöðu – ef við nýtum tækifærin. Ísland býr yfir öllu sem þarf fyrir næsta vaxtarskeið. Við erum hlutfallslega ung þjóð og hér eru nægar auðlindir – hvort tveggja mannauður og náttúruauðlindir. Ísland býr jafnframt yfir fjármögnuðu lífeyriskerfi, meira jafnrétti kynjanna, og meiri tekju- og eignajöfnuði en flestar aðrar þjóðir. En það er til lítils að hafa öll tækifærin í hendi sér, ef þau eru ekki nýtt.
Skattar skapa ekki verðmæti en verðmæti skapa skatttekjur.
Við verðum að hafa augun á verðmætasköpuninni og muna að skattar skapa ekki verðmæti, fjölbreytt og blómlegt atvinnulíf skapar verðmæti. Áherslan þarf að vera á hallalaus fjárlög með hagræðingu á útgjaldahliðinni. Til lengri tíma litið þarf að horfa til þess að Ísland er háskattaríki og það myndi efla verðmætasköpun og hagvöxt að draga úr skattbyrði.
Skattar skapa ekki verðmæti en verðmæti skapa skatttekjur. Hófleg skattheimta leyfir atvinnulífi að dafna og getur skilað meiri skatttekjum en ef skatthlutföll væru hærri. Á Íslandi eru nú þegar 4. hæstu skattarnir innan OECD.
Þrátt fyrir að erfitt kunni að reynast að lækka skatta á næstu 1-2 árum er ekki þar með sagt að ómögulegt sé að bæta samkeppnishæfni íslensks skattkerfis. Skatttegundir hafa nefnilega mismunandi áhrif á hegðun einstaklinga. Samsetning skatta hefur þannig áhrif á hagkerfið og þróun hagsældar.
Þrepaskiptir tekjuskattar eru notaðir um allan heim en hafa þarf í huga að háir jaðarskattar hafa áhrif á vilja einstaklinga til þess að vinna og draga þannig úr framleiðni skattkerfisins. Fyrirtækjaskattar og skattar á laun og fjármagn eru sérlega skaðlegir þegar kemur að áhrifum á hagvöxt. Flest lönd innan OECD hafa áttað sig á neikvæðum áhrifum slíkra skatta og hafa skattar á fjármagn og fyrirtæki því almennt farið lækkandi á undanförnum áratugum á meðan vægi breiðari skattstofna á borð við neysluskatta hefur aukist.
Skilvirkara skattkerfi ætti að vera áhersluatriði næstu ríkisstjórnar.
Þá búum við nú þegar við sértæka skatta á fyrirtæki, fjármálafyrirtæki, sjávarútvegsfyrirtæki og ferðaþjónustufyrirtæki en það gefur auga leið að slíkir skattar draga úr samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegri samkeppni.
Það má öllum vera ljóst að það eru fjölmörg tækifæri til þess að stórbæta íslenskt skattkerfi og styðja þar með við aukna verðmætasköpun sem getur aukið skatttekjur ríkissjóðs til lengri tíma án þess að auka eiginlega skattbyrði. Skilvirkara skattkerfi ætti að vera áhersluatriði næstu ríkisstjórnar, en ekki hækkun á sköttum og gjöldum enda er aukin samkeppnishæfni sjálfbærasta leiðin til að fjármagna aukna innviðauppbyggingu og öflugra velferðarkerfi.
Samkeppnishæfni hagkerfisins er einmitt efst á listanum yfir stefnumarkandi áherslur nýrrar framkvæmdastjórnar innan Evrópusambandsins. Það færi vel á því sama hjá nýrri ríkisstjórn hérlendis.
Greinin birtist fyrst á Vísi þann 17. nóvember.