25. september 2026

Vel heppnað málþing um örvottanir

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Vel heppnað málþing um örvottanir

Maj-Britt Briem lögmaður á vinnumarkaðssviði og sérfræðingur í menntamálum hjá SA hélt erindi og tók þátt í pallborðsumræðum á málþingi MCEU um örvottanir sem haldið var í Sant Pol á Spáni þann 21. september síðastliðinn.

Málþingið var haldið í tengslum við evrópska Erasmus+ verkefnið MCEU, Upskilling the EUROPEAN Hospitality Industry with Portable Micro-Credentials. Um er að ræða samstarfsverkefni þriggja landa þ.e. Íslands, Spánar og Danmerkur en fulltrúar Íslands í verkefninu koma frá Samtökum fyrirtækja í ferðaþjónustu (SAF) og Iðunni-fræðslusetri. Verkefnið gengur út á að prófa stuttar, stafrænar námsleiðir fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu þ.m.t í matvæla- og veitingagreinum. Verkefnið var unnið í nánum tengslum við fyrirtæki hjá SAF og komu allir íslensku þátttakendurnir úr atvinnulífinu og kláruðu þeir yfir 80 námsleiðir, en hver námsleið samanstendur af mörgum örnámskeiðum.

Hugmyndin er einföld: Að gera fólki kleift að bæta við sig hæfni samhliða starfi eða öðrum verkefnum. Örnám getur til dæmis aukið ákveðna tæknikunnáttu eða aðra sérhæfða þekkingu sem vinnustaður kallar eftir. Meginmarkmið örnáms er að einstaklingar geti safnað saman námseiningum sem síðar má meta með formlegum hætti. Þannig geta einstaklingar þróað þekkingu sína í skrefum, í takt við eigin starfsferil og þarfir vinnumarkaðarins.

Hefðbundið „formlegt“ menntakerfi hefur undanfarin ár gegnt lykilhlutverki í að tryggja framboð og aðgengi að fjölbreyttri menntun. Hins vegar hefur verið bent á að hefðbundnar námsleiðir geti verið of langar, ósveigjanlegar eða svifaseinar þegar kemur að því að mæta þeim hraða sem örar breytingar á vinnumarkaði krefjast. Fyrirtækin hafa oft ekki tíma til að bíða eftir ákveðinni hæfni, þurfa starfsfólk með ákveðna hæfni strax en ekki eftir margra ára nám.

Örnám kemur ekki í stað formlegs náms en er sveigjanleg leið til að mæta breyttum hæfnikröfum og með skýrari ramma og sameiginlegri nálgun menntakerfis og atvinnulífs gæti örnám m.a. orðið leið til bregðast við breytingum á störfum (e: upskilling and reskilling) og stuðlað að öflugri starfsþróun, sjá nánari umfjöllun hér: 1. Lyklar að hæfni framtíðarinnar: Örnám

Samtök atvinnulífsins