Fréttir - 

02. febrúar 2018

Upptökur frá Smáþingi Litla Íslands 2018

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Upptökur frá Smáþingi Litla Íslands 2018

Markaðsmál lítilla og meðalstórra fyrirtækja voru í kastljósinu á Smáþingi Litla Íslands á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 1. febrúar. Tölur um umfang og mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja voru birtar á þinginu auk þess sem bent var á leiðir til að bæta starfsumhverfið. Frumkvöðlar sögðu skemmtilegar sögur og tóku þátt í umræðum.

Á fjórða hundrað gesta tóku þátt í þinginu og rúmlega 1.500 horfðu á beina útsendingu á vefnum. Hægt er að horfa á einstök erindi hér að neðan á vef SA.

  • Hvernig á að ná í nýja viðskiptavini og halda núverandi viðskiptavinum?
  • Hvað er að gerast á markaðnum?
  • Hvernig nærðu árangri með markaðsstarfi?
  • Hvernig er hægt að nota samfélagsmiðla með nýjum hætti?
  • Hvaða áhrif hafa áhrifavaldar?

Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, setti þingið Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá VÍS, stýrði því.

Litla Ísland er vettvangur þar sem lítil fyrirtæki vinna að stórum hagsmunamálum. Bakhjarlar Litla Íslands eru SAF, SVÞ, SI, SFF og SA. 

Tengt efni:

Könnun Litla Íslands fyrir Smáþing 2018

Samtök atvinnulífsins