25. október 2024

Umhverfisdagurinn gekk vonum framar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Umhverfisdagurinn gekk vonum framar

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2024 var haldinn síðastliðinn þriðjudag, 22. október, á Hilton Nordica undir yfirskriftinni Atvinnulífið leiðir . Dagurinn er árlegt samstarfsverkefni SA, SAF, Samorku, SFF, SFS, SI og SVÞ.

Dagurinn í ár var tileinkaður leiðandi atvinnulífi á sviði grænna lausna. Hin árlegu Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru veitt fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Umhverfisframtak ársins.Í kjölfarið tóku við tvær lotur af lifandi og skemmtilegum málstofum þar sem þátttakendur miðluðu sinni reynslu úr umhverfismálum. Þar komu fjölbreyttir fulltrúar aðildarsamtakanna saman og ræddu stöðu atvinnulífsins, áskoranir og horfur til framtíðar.

Við þökkum öllum þátttakendum kærlega fyrir einstaklega vel heppnaða dagskrá á þessum mikilvæga viðburði innan atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins