Fréttir - 

19. febrúar 2021

Tíu færniþættir framtíðar

Menntamál

Menntamál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Tíu færniþættir framtíðar

Á Menntadegi atvinnulífsins fór fram fjölbreytt og skemmtileg dagskrá þar sem valinkunnir stjórnendur úr atvinnulífinu fjölluðu m.a. um topp tíu færniþætti framtíðar eftir viðmiðum Alþjóðaefnahagsstofnunar fyrir árið 2025.

Á Menntadegi atvinnulífsins fór fram fjölbreytt og skemmtileg dagskrá þar sem valinkunnir stjórnendur úr atvinnulífinu fjölluðu m.a. um topp tíu færniþætti framtíðar eftir viðmiðum Alþjóðaefnahagsstofnunar fyrir árið 2025.

Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF stýrði umræðum um þessa færniþætti undir yfirskriftinni „Strax í dag“. Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair, Sigrún Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Bláa Lónsins og Ingvi Hrannar Ómarsson, sérfræðingur í skólaþróunarteymi Menntamálaráðuneytisins töluðu hispurslaust um innslög stjórnendanna og um það sem allar menntastofnanir og vinnustaðir geta ráðist í strax í dag:

Smelltu hér fyrir topp tíu gátlistann

Topp tíu færniþættir

Hvað getum við gert betur"https://player.vimeo.com/video/508370427?app_id=122963" width="360" height="203" frameborder="0" allow="autoplay; fullscreen; picture-in-picture" allowfullscreen="" title="Finnur Oddsson - forstjóri Haga">

2. Virkni í námi og námsaðgerðum 

Gerum betur með

  • að hvetja til sjálfsnáms t.d. netnámskeiða
  • að kapa námsumhverfi á vinnustað
  • röð fræðsluerinda
  • að deila hugmyndum með öðrum

3. Lausnamiðuð nálgun  

Gerum betur með

  • að takast á við raunveruleg viðfangsefni
  • að vinna í hópum með ólíka styrkleika

4. Gagnrýnin hugsun og greining 

Gerum betur með

  • að þjálfa rökræðu
  • að æfa ályktunarhæfni
  • að koma fram og færa rök fyrir máli sínu

5. Sköpun, frumleiki og frumkvæði  

Gerum betur með

  • að vinna með spuna
  • að vinna með túlkun í fjölbreyttu listformi
  • að skapa rými fyrir flæði
  • að vinna með liðsheild

6. Forysta og félagsleg áhrif 

Gerum betur með

  • að úthluta leiðtogahlutverkum
  • að æfa lýðræðislega þátttöku
  • að leggja fram tillögur að breytingum og fylgja þeim eftir

7. Tækninotkun, eftirlit og stjórn 

Gerum betur með

  • að æfa sig að gera mistök
  • að æfa sig í að reka sig á
  • að æfa kjark og þor gagnvart hinu óþekkta

8. Tæknihönnun og forritun 

Gerum betur með því að

  • að vinna með óvissu - hvað ef?
  • að æfa rökhugsun

9. Seigla, streituþol og sveigjanleiki

Gerum betur með

  • að vinna markvisst að langtímaverkefni með endanlegu markmiði
  • að æfa sjálfsvinnu

10. Rökhugsun, lausn vandamála og hugmyndaauðgi

Gerum betur með

  • skapandi hugsun og að leysa verkefni með mismunandi útfærslum
  • að geta fært rök fyrir því hvers vegna valin leið er góð leið

Horfðu á þáttinn í heild sinni hér: 

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins