Samkeppnishæfni - 

18. nóvember 2020

Sjóvá og Pink Iceland hlutu jafnréttisverðlaun

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Sjóvá og Pink Iceland hlutu jafnréttisverðlaun

Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2020 voru í dag veitt tryggingarfélaginu Sjóva, en mannréttindi eru mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins. Á hverju ári eru skilgreindar markvissar aðgerðir í jafnréttismálum innan fyrirtækisins. Hermann Björnsson forstjóri og Ágústa Bjarnadóttir forstöðumaður mannauðs veittu verðlaununum viðtöku.

Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2020 voru í dag veitt tryggingarfélaginu Sjóva, en mannréttindi eru mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins. Á hverju ári eru skilgreindar markvissar aðgerðir í jafnréttismálum innan fyrirtækisins. Hermann Björnsson forstjóri og Ágústa Bjarnadóttir forstöðumaður mannauðs veittu verðlaununum viðtöku.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars:

Sjóvá var fyrsta fyrirtækið til að fá 10 á kynjakvarða Kauphallarinnar GEMMAQ og hefur náð góðum árangri í að jafna kynjahlutföll með skýrri stefnu og skipulögðum ákvörðunum um ráðningar.

Stjórnendur eru sannfærðir um að áhersla á jafnrétti skilar rekstrarlegum ávinningi og horfa þau á jafnréttismál sem hluta af aðgerðum til að auka arðsemi. Sjóvá sýnir mikið frumkvæði með því að bjóða upp á framlengingu fæðingarorlofs sem nemur sex vikum á 80% launum. Jafnréttisýn og árangur Sjóvár er hvetjandi fyrir önnur fyrirtæki og hefur Sjóvá tekið mjög virkan þátt í umræðum um jafnréttismál.  

Sérstök sprotaverðlaun veitt í ár

Auk þessa urðu þau nýmæli í ár að sérstök sprotaverðlaun voru veitt fyrirtækinu Pink Iceland, sem jafnframt er eina ferðaþjónustu- og viðburðarfyrirtæki landsins sem einblínir á þarfir og menningu hinsegin fólks. Það var Eva María Þórarinsdóttir Lange, eigandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland sem tók við verðlaunum, ásamt meðeigendum sínum þeim Birnu Hrönn Björnsdóttur og Hannesi Páli Pálssyni.

Í rökstuðningi dómnefndar um Pink Iceland segir meðal annars:

Skilningur á jafnréttishugtakinu er víður. Fyrirtækið einblínir ekki aðeins á tvö kyn heldur er áhersla á það mannlega, að við eigum öll að búa við jafnrétti, virðingu og frelsi. Mannréttindastefna fyrirtækisins er skýr bæði innan fyrirtækisins og út á við. Áhersla er lögð á að stefna og vinnubrögð birgja samræmist stefnu fyrirtækisins. Þá velur fyrirtækið samstarfsaðila sem vinna eftir gæða-, umhverfis- og siðferðilegum kröfum. Fyrirtækið býður samstarfsaðilum sínum upp á fræðslu um jafnréttismál og er þannig hvetjandi afl í að skapa aukið jafnrétti á vinnumarkaðnum og í samfélaginu.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem meðal annarra standa að verðlaununum, segir fyrirtækin bæði vel að verðlaununum komin.

„Það eru snjallir stjórnendur sem kalla til fólk með mismunandi bakgrunn og af ólíkum kynjum til starfa. Það er atvinnulífinu beinlínis nauðsynlegt að fá að heyra fjölbreytt og uppbyggileg sjónarmið ólíks fólks. Þannig aukum við verðmæti og velmegun í íslensku samfélagi. Þetta vita stjórnendur Sjóvar og Pink Iceland mætavel.”

Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á fyrirtækjum sem skara framúr í jafnréttismálum. Önnur fyrirtæki eru hvött til þess að feta sömu braut. Að hvatningunni standa Samtök atvinnulífsins, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð, Háskóli Íslands og UN Women á Íslandi.

Hér má sjá viðburðinn frá í morgun.

Samtök atvinnulífsins