1 MIN
SA styðja við frumkvöðlastarf ungs fólks
Samtök atvinnulífsins og Ungir frumkvöðlar undirrituðu í dag samstarfssamning um stuðning við frumkvöðlamenntun, fjármálalæsi og undirbúning ungs fólks fyrir atvinnulífið. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, og Petra Bragadóttir, framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla, undirrituðu samninginn.
Samkvæmt samningnum munu SA leggja tvær milljónir króna árlega til starfsemi Ungra frumkvöðla næstu þrjú árin. Samstarfið felur jafnframt í sér þátttöku starfsfólks SA í verkefnum samtakanna, meðal annars með leiðsögn, ráðgjöf og miðlun þekkingar til nemenda. Samtök atvinnulífsins hafa um árabil stutt starf Ungra frumkvöðla. Með samningnum er áframhaldandi stuðningur við frumkvöðlamenntun og tengsl ungs fólks við atvinnulífið tryggður.
„Öflugt atvinnulíf framtíðarinnar byggist á því að ungt fólk fái tækifæri til að prófa hugmyndir sínar og læra af reynslunni. Með þessu samstarfi viljum við efla frumkvæði og trú ungs fólks á eigin getu til að skapa eitthvað nýtt. Það er mikils virði að kynnast því snemma hvernig hugmynd getur orðið að fyrirtæki, skapað störf og skilað samfélaginu verðmætum,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA.
Ungir frumkvöðlar eru hluti af alþjóðlegu samtökunum JA Worldwide og JA Europe. Starfið miðar að því að efla færni og þekkingu ungs fólks með áherslu á frumkvöðlastarf, fjármálalæsi og þátttöku í atvinnulífinu. Samstarf við atvinnulífið er mikilvægur þáttur í því að tengja námið við raunveruleg verkefni og reynslu.
Meðal helstu verkefna Ungra frumkvöðla er Fyrirtækjasmiðjan, þar sem framhaldsskólanemar stofna fyrirtæki og þróa eigin viðskiptahugmyndir. Nemendur njóta fræðslu og leiðsagnar, kynna vörur sínar á árlegri Vörumessu og keppa um þátttöku í Evrópukeppni ungra frumkvöðla. Árið 2026 stofnuðu 620 nemendur 150 fyrirtæki innan verkefnisins.

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, og Petra Bragadóttir, framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla.