1 MIN
SA og Júní smíða nýjan vef
Samtök atvinnulífsins hafa gert samning við Júní um hönnun og þróun nýrrar vefsíðu samtakanna. Áhersla verður lögð á bætta þjónustu við aðildarfyrirtæki, einfaldara aðgengi að upplýsingum og öflugri leit. Ráðgert er að vefurinn fari í loftið fyrir miðjan febrúar 2027.
Nýi vefurinn verður skipulagður út frá þörfum notenda og þeim verkefnum sem þeir þurfa að leysa í daglegum rekstri. Sérstök áhersla verður lögð á vinnumarkaðsmál, þar sem atvinnurekendur geta nálgast kjarasamninga, leiðbeiningar og ráðgjöf með skýrari og aðgengilegri hætti.
„Fólk sem rekur fyrirtæki þarf greiðan aðgang að áreiðanlegum upplýsingum og góðri ráðgjöf. Með nýjum vef viljum við auðvelda aðildarfyrirtækjum okkar að finna svör og nýta sér þjónustu samtakanna. Markmiðið er einfalt: Að spara þeim tíma og veita enn betri stuðning við daglegan rekstur,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
„Við hjá Júní erum þakklát fyrir traustið sem SA sýnir okkur með því að fela okkur hönnun og þróun nýs vefs í nánu samstarfi við þau. Hér er tækifæri til að nýta nýjustu tækni, gervigreind og gögn til að gera upplýsingar og þjónustu aðgengilegri og skapa betri upplifun fyrir notendur. Markmiðið er að ryðja brautina fyrir nýja nálgun á íslenskum vefmarkaði og leggja traustan grunn að áframhaldandi stafrænni þróun SA,“ segir Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Júní.
Samhliða endurhönnun verður efni vefsins endurskipulagt og leiðsögn bætt. Vefurinn verður jafnframt áfram mikilvægur vettvangur fyrir fréttir, greiningar, umsagnir og miðlun áherslumála samtakanna.

Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Júní, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA.