1 MIN
Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 - opnað hefur verið fyrir tilnefningar
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna Umhverfisdags atvinnulífsins 2026 sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Grand frá kl. 13:00–15:15 og verður skráning auglýst fljótlega.
Hægt er að senda inn tilefningar fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 til og með 10. október. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem skarar fram úr í umhverfis- og loftslagsmálum og sýnir í verki hvernig árangur næst með markvissum aðgerðum, nýsköpun og ábyrgri stjórnun.
Í ár er horft sérstaklega til ábyrgrar ákvarðanatöku í umhverfismálum.
Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.
Nauðsynlegt er að skila inn rökstuðningi fyrir eftirfarandi þætti:
- Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi.
- Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni, til dæmis: hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel.
- Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið.
- Hefur sett sér aðgerðaráætlun í umhverfismálum sem inniheldur töluleg og tímasett markmið til þess að draga markvisst úr umhverfisáhrifum starfsemi fyrirtækisins.
- Hefur sett sér sjálfbærnistefnu og birt opinberlega, ásamt því að birta markmið og árangur sem náðst hefur.
- Getur sýnt fram á að umhverfismál hafi áhrif á ákvarðanatöku og að fyrirtækið þekki helstu áhættur og tækifæri sem tengjast umhverfismálum.
Hér er hægt að senda inn tilnefningu.