16. nóvember 2026

Nýtt fræðslumyndband um einelti

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Nýtt fræðslumyndband um einelti

Í tilefni af Degi gegn einelti 8. nóvember síðastliðinn hefur Vinnueftirlitið gefið út nýtt fræðslumyndband um einelti á vinnustöðum, í samstarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, Jafnréttisstofu og Embætti landlæknis.

Í myndbandinu er fjallað um hvað einelti á vinnustöðum er og hvernig það getur birst með ólíkum hætti í vinnuumhverfinu. Einnig er fjallað um hvernig einelti getur átt rætur í skipulagi, stjórnun og samskiptum og mikilvægi þess að grípa snemma inn í áður en mál stigmagnast. Jafnframt bent á forvarnir og viðbrögð fyrir vinnustaði.

Samhliða nýjasta myndbandinu er gefið út nánara fræðsluefni um hvernig fyrirbyggja megi einelti á vinnustöðum og efla heilbrigða vinnustaðamenningu. Má þar nefna gátlistann: Grípum snemma inn í neikvæð samskipti.

Einnig er hægt að kanna þekkingu sína á málefninu með spurt og svarað.

Hér að neðan eru hlekkir á eldri fræðslumyndbönd tengd EKKO. Myndböndin eru einnig aðgengileg á ensku á YouTube rás Vinnueftirlitsins.

Þá er einnig rétt að minna á greinar sem Maj-Britt Hjördís Briem, lögfræðingur á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins hefur skrifað um málefnið.

Samtök atvinnulífsins