1 MIN
Neikvæð áhrif á samkeppnishæfni íslensks flugs og ferðaþjónustu
Ný skýrsla Hagrannsókna um áhrif viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS) á íslenskt flug og ferðaþjónustu bendir til þess að núverandi fyrirkomulag geti haft umtalsverð neikvæð áhrif á samkeppnishæfni Íslands.
Í skýrslunni er bent á að Ísland búi við aðrar aðstæður en meginland Evrópu þar sem flugsamgöngur séu forsenda ferðaþjónustu, útflutnings og alþjóðlegra tenginga. Þar sem raunhæfir valkostir við jarðefnaeldsneyti í flugi séu enn takmarkaðir virki ETS-gjöld í reynd sem viðbótarskattur á íslenskt flug.
Greining Hagrannsókna bendir til þess að hækkandi ETS-kostnaður geti leitt til hærra flugfargjalds, færri ferðamanna og minni umsvifa í ferðaþjónustu. Samkvæmt sviðsmyndum skýrslunnar gæti landsframleiðsla dregist saman um 0,17–0,38% ef kolefniskostnaður tvöfaldast og enn meira ef þróunin verður hraðari.
Í skýrslunni eru lagðar til breytingar á framkvæmd ETS gagnvart Íslandi, meðal annars aukin úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda og úrræði sem draga úr samkeppnishalla gagnvart flugfélögum utan ETS.