13. nóvember 2026

Menntun þarf að opna fyrir fleiri tækifæri

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Menntun þarf að opna fyrir fleiri tækifæri

Rúmur þriðjungur nemenda væri enn undir viðmiðum um grunnhæfni í lesskilningi árið 2030, jafnvel þótt markmið nýrrar aðgerðaáætlunar í menntamálum næðist að fullu samkvæmt fyrirliggjandi drögum að þingályktunartillögu. Samtök í atvinnulífinu telja það ekki viðunandi framtíðarsýn. Tryggja þurfi fleiri nemendum trausta grunnfærni, fjölga plássum í iðnnámi og greiða fullorðnum leið til að ljúka námi.

Þetta kemur fram í sameiginlegri umsögn SA, Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Samtaka sjálfstæðra skóla um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030. Samtökin fagna áherslu á grunnfærni og gæði kennslu en kalla eftir skýrari aðgerðum og ábyrgð á árangri.

Traustur grunnur fyrir nám og störf

Lesskilningur, íslenska og stærðfræði eru undirstaða þess að fólk geti aflað sér þekkingar, tileinkað sér nýja tækni og tekist á við breytt verkefni. Veik grunnfærni við lok grunnskóla takmarkar tækifæri til áframhaldandi náms og starfa.

Markmið áætlunarinnar um að 65% nemenda nái grunnhæfni í lesskilningi árið 2030 gengur að mati samtakanna ekki nógu langt. Þau kalla eftir skýrri áætlun um stuðning við nemendur sem standa höllum fæti, árlegum markmiðum og skilgreindri ábyrgð á úrbótum.

Áhuga og eftirspurn eftir iðnnámi þarf að mæta

Þegar fólk vill læra iðngrein og fyrirtæki vantar fagfólk má skortur á námsplássum ekki standa í vegi. Samtökin kalla eftir tölusettum markmiðum um fleiri iðnnámspláss frá árinu 2027 og fjármögnun sem tekur mið af raunverulegum kostnaði námsins.

Fjölgun plássa í skólum þarf að fylgja nægilegt framboð kennara, búnaðar og vinnustaðanáms. Þannig geti aukinn áhugi á iðnnámi skilað sér í námslokum og starfsréttindum.

Starfsreynsla nýtist til námsloka

Fullorðið fólk sem fær færni sína metna með raunfærnimati þarf jafnframt að geta lokið því námi sem eftir stendur. Fjárfesting í matinu nýtist ekki sem skyldi ef viðkomandi fær síðan ekki aðgang að nauðsynlegum áföngum.

Samtökin leggja því til að tryggð verði samfelld leið frá raunfærnimati til námsloka, með einstaklingsbundinni námsáætlun og sveigjanlegu námi samhliða starfi.

Þessar áherslur þjóna sameiginlegum hagsmunum fólks og fyrirtækja. Fleiri fá tækifæri til að nýta hæfileika sína og atvinnulífið fær hæft starfsfólk til að takast á við ný verkefni. Árangur menntastefnunnar þarf að birtast í framförum nemenda, fleiri námslokum og auknum tækifærum til náms og starfa.

Samtökin leggja jafnframt áherslu á að ákvarðanir um námsframboð og aðgerðir í menntamálum byggist á færnispám og reglulegu samráði við atvinnulífið, svo menntakerfið geti betur mætt breyttri hæfniþörf.

Samtök atvinnulífsins