11. febrúar 2025

Menntadagur atvinnulífsins í beinni kl. 09:00

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Menntadagur atvinnulífsins í beinni kl. 09:00

Menntadagur atvinnulífsins fer fram í dag kl. 09:00 á Hilton Nordica þann 11. febrúar undir yfirskriftinni Störf á tímamótum . Menntadagurinn er sameiginlegt verkefni SA og allra aðildarsamtaka þar sem fræðslu- og menntamál atvinnulífsins eru í forgrunni.

Meðal dagskrárliða er erindi Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, fögnuður 25 ára afmæli starfsmenntasjóðanna, umræður um stöðu menntunar við forseta Íslands og loks afhending menntaverðlauna atvinnulífsins. Eftir formlega athöfn stendur fólki til boða að taka þátt í tveimur lotum af áhugaverðum málstofum og kynna sér árangur fjölbreyttra fyrirtækja í fræðslu- og menntamálum á sérstöku menntatorgi dagsins.

Formleg dagskrá hefst kl. 9 og verður henni streymt á öllum helstu miðlum hér:

Horfa á Menntadag atvinnulífsins

Athugið að málstofum er ekki streymt.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu dagsins.

Samtök atvinnulífsins