Vinnumarkaður - 

17. febrúar 2020

Lífskjarasamningurinn lykill að betri kjörum

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Lífskjarasamningurinn lykill að betri kjörum

Samtök launafólks, atvinnulífið og stjórnvöld tóku höndum saman 3. apríl 2019 um fjölþættar aðgerðir til að treysta kaupmátt launa, minnka verðbólgu og lækka vexti. Ríkisstjórn Íslands leggur til 80 milljarða króna til að styðja við markmið Lífskjarasamningsins.

Hagur heimilanna hefur batnað og verðbólgan er horfin

Samið hefur verið um kjör 97% starfsmanna á almennum vinnumarkaði og félagsmanna 18 af 19 aðildarfélögum SGS sem starfa hjá sveitarfélögum um land allt. Lægstu laun hækka hlutfallslega mest, eða um 90 þúsund krónur á mánuði á samningstímanum.

Lífskjarasamningurinn hefur skilað ríkulegum ávinningi. Verðbólga er mjög lítil og vextir hafa ekki verið lægri í 70 ár. Ráðstöfunartekjur skuldsettra heimila aukast vegna lægri vaxta og mögulegrar endurfjármögnunar lána.

Lækkun tekjuskatts á lægri tekjur hefur tryggt lágtekjufólki auknar ráðstöfunartekjur um allt að 10 þúsund krónur á mánuði.

Lífskjarasamningurinn stuðlar að styttri og sveigjanlegri vinnutíma sem tekur mið af mismunandi þörfum fólks og fyrirtækja.

Framlag ríkisstjórnarinnar felst í því að á næstu misserum verður fjárfest í framtíðinni fyrir 80 milljarða króna. Mestu skiptir lenging fæðingarorlofs, lækkun tekjuskatts, hækkun barnabóta og lausnir í húsnæðismálum. Aðgerðirnar gagnast best ungu og tekjulágu fólki.

Aðalatriðið er að launin verða verðmætari og meira fæst fyrir þau vegna jákvæðra breytinga sem samkomulag náðist um milli samtaka launafólks, atvinnulífs og stjórnvalda.

Viltu vita meira?

Kynning á Lífskjarasamningnum 2019-2022 (PDF)

Samtök atvinnulífsins