1 MIN
Leigubremsa getur unnið gegn hagsmunum leigjenda
Samtök atvinnulífsins vara við því að fyrirhuguð leigubremsa geti dregið úr framboði leiguhúsnæðis, hækkað upphafsleigu og veikt hvata til langtímasamninga. Samtökin vara við því að aðgerðir sem eigi að styrkja stöðu leigjenda geti þannig unnið gegn hagsmunum þeirra.
Markmið stjórnvalda eru að auka húsnæðisöryggi, draga úr vægi verðtryggingar og auka fyrirsjáanleika húsnæðiskostnaðar. Samtökin taka undir mikilvægi húsnæðisöryggis en telja ekki sýnt fram á að fyrirhugaðar aðgerðir skili þeim árangri.
Minna framboð og hærri upphafsleiga
Takmarkanir á leigubreytingum geti haft áhrif á bæði framboð húsnæðis og kjör leigjenda. Leigusalar geti brugðist við með hærri upphafsleigu eða styttri samningum, þannig að leigufjárhæð sé endurmetin oftar við endurnýjun. Með frumvarpinu er líklega dregið úr hvötum til útleigu og fjárfestingar í leiguhúsnæði.
Í umsögninni er vísað til erlendra rannsókna sem sýna að leigustýring geti haldið aftur af leigu í húsnæði sem fellur undir reglurnar, en jafnframt haft neikvæð áhrif á framboð, viðhald og leigu utan hins stýrða hluta markaðarins. Erlendu kerfin séu þó ólík og sum mun víðtækari en íslenska tillagan. Ekki sé því rétt að yfirfæra tölulegar niðurstöður þeirra beint á íslenskan markað. Hins vegar megi ekki líta fram hjá þeirri staðreynd að fleiri rannsóknir meta heildaráhrif leigustýringar slæm á leigumarkaði líkt og sést á myndinni að neðan.
Færri hækkanir afnema ekki verðtryggingu
Frumvarpið felur meðal annars í sér að minnst tólf mánuðir þurfi að líða milli breytinga á leigufjárhæð. Við breytingar verði aðeins heimilt að nota eitt viðmið: vísitölu neysluverðs til verðtryggingar, fast hlutfall eða fasta fjárhæð. Hækkun leigu geti þó aldrei farið umfram breytingu vísitölunnar.
Árlegar uppfærslur geta aukið vissu um greiðslur innan árs. Hækkanirnar geti þannig þýtt stærri stökk þegar uppsöfnuð hækkun kemur til framkvæmda. Vísitölutenging leigunnar haldist þótt uppfærslum fækki.
Samtökin telja því þörf á skýrara mati á áhrifum frumvarpsins á verðtryggingu, verðbólgu og heildarkostnað leigjenda. Meta þurfi hvort breytingarnar lækki kostnaðinn eða færi greiðslubyrðina framar á samningstímann með hærri upphafsleigu.
Samráði sleppt og fyrri breytingar ekki metnar
SA gagnrýna að frumvarpið hafi ekki verið kynnt í samráðsgátt. Sú skýring að samráð gæti hvatt til leiguverðshækkana standist illa, enda geti sömu viðbrögð komið fram við þinglega meðferð málsins. Vandamálið sé því ekki samráðsleysið heldur öllu frekar frumvarpið sjálft.
Þá hafi ekki verið lagt fullnægjandi mat á áhrif fyrri breytinga á húsaleigulögum, meðal annars banns við breytingum á leigu fyrstu tólf mánuði tímabundins samnings. Samtökin telja rétt að meta reynsluna af þeim áður en gengið sé lengra í takmörkunum á samningsfrelsi og eignarrétti.
Atvinnuhúsnæði verði undanskilið
Frumvarpið nær einnig til atvinnuhúsnæðis. Gengur það gegn niðurstöðu þríhliða samtals stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins í haust og vænta samtökin þess að sá hluti verði felldur brott.
Á atvinnuleigumarkaði gildi aðrar viðskiptavenjur, meðal annars um langtímasamninga, veltutengda leigu og þrepaleigu. Hvorki liggi fyrir sjálfstæður rökstuðningur né áhrifamat fyrir því að láta breytingarnar ná til þess markaðar.
Húsnæðismál eru eitt stærsta lífskjaramál samtímans. Lausnir þurfi að bæta aðgengi að húsnæði og styðja við uppbyggingu. Að mati samtakanna vinnur frumvarpið gegn þeim markmiðum.