Fréttir - 

10. desember 2020

Látum jólin ganga í beinni á Stöð 2

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Látum jólin ganga í beinni á Stöð 2

„Við ætlum að vera jákvæð, skemmtileg, í jólaskapi og hvetja hvert annað til að hafa keðjuverkandi áhrif og halda atvinnustarfsemi gangandi, þrátt fyrir ýmis högg á þessu ári. Maður verður nefnilega að vera léttur,” segir Logi Bergmann, einn þáttastjórnenda Látum jólin ganga.

Látum jólin ganga er jóla-, skemmti-, tónlistar- og viðtalsþáttur í tengslum við átakið Íslenskt - láttu það ganga sem verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá í kvöld kl. 19.35 á Stöð 2 og Vísi. Þáttastjórnendurnir Logi Bergmann Eiðsson og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir verða á stóra sviði Borgarleikhússins og fá til sín fjölmarga gesti.

Markmiðið með þættinum er að stappa stálinu í þjóðarsálina, hvetja landann til að kaupa íslenska framleiðslu, íslenska hönnun, innlendar vörur og þjónustu og þá af innlendum vefverslunum frekar en erlendum keppinautum. Þeir Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson verða einnig á vettvangi og gera sitt allra besta til að láta hjól atvinnulífsins snúast.

Þátturinn, sem Skot Productions framleiðir, er styrktur af Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum sem og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. 

Hér má horfa á þáttinn í kvöld kl. 19:35 í beinni. 

Samtök atvinnulífsins