Samkeppnishæfni - 

27. nóvember 2019

Landsvirkjun hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2019

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Landsvirkjun hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2019

Landsvirkjun hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála árið 2019 en þau voru veitt á fundi um jafnréttismál sem haldinn var í Hátíðasal Háskóla Íslands í morgun. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, tók við viðurkenningunni úr hendi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra.

Landsvirkjun hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála árið 2019 en þau voru veitt á fundi um jafnréttismál sem haldinn var í Hátíðasal Háskóla Íslands í morgun. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, tók við viðurkenningunni úr hendi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra.

Hvatningarverðlaun jafnréttismála voru nú veitt í sjötta sinn en markmið þeirra er að vekja athygli á fyrirtækjum sem hafa jafnrétti að leiðarljósi í starfsemi sinni og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem hefur stuðlað að jöfnum möguleikum kynjanna til starfsframa, jöfnum launum, jafnvægi í kynjahlutföllum og aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið.

Í rökstuðningi dómnefndar kemur meðal annars fram:

„Landvirkjun hefur lagt ríka áherslu á að skapa góða fyrirtækjamenningu þar sem jafnrétti og virðing fyrir fjölbreytileika samfélagsins liggja til grundvallar. Tekið er mið af jafnréttismálum í heildarstefnu fyrirtækisins og er ávinningurinn er áþreifanlegur. Grasrót fyrirtækisins hefur verið mjög öflug og var aðgerðaráætlun jafnréttismála mynduð úr umbótatillögum starfsfólks. Umfjöllun um jafnréttismál hefur verið tekin upp með fjölbreyttum hætti og er forstjóri eigandi verkefnisins og formaður jafnréttisnefndar. 

Breið nálgun við greiningu á stöðu jafnréttis í fyrirtækinu er í forgrunni. Áður fyrr var lagður fremur þröngur skilningur á jafnréttishugtakinu og lítið horft til veigamikilla atriða svo sem menningar, sýnileika kvenna og ákvörðunar- og áhrifavalds þeirra innan fyrirtækisins. Landsvirkjun hefur farið framsæknar leiðir í innri markaðssetningu á jafnrétti. Í allri jafnréttisvinnunni hefur verið haft að leiðarljósi að hjálpast að við að skilja jafnrétti og þróa vinnustaðamenninguna saman sem heild.

Hjá Landsvirkjun er vilji til að hafa áhrif og miðla jafnréttisvinnu og hugmyndum í samfélaginu. Í þeirra hugum eru jafnréttismál ekki átak, það er komið til að vera. Þau eru meðvituð um hvar þau standa, hvert þau vilja komast og gera sér grein fyrir mikilvægi jafnréttis í sjálfbærum heimi“.

„Jafnréttismál hafa verið í forgangi hjá okkur í Landsvirkjun undanfarin ár. Þegar lagt hefur verið af stað í slíka vegferð verður ekki aftur snúið. Með því að vinna markvisst að jafnrétti á öllum sviðum fyrirtækisins og gera breytingar á stóru og smáu erum við að sjá árangur og fyrirtækið er að þróast hraðar en áður. Það er okkur mikilvægt, því við viljum vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir framúrskarandi fólk af öllum kynjum. Verðlaunin eru okkur mikil hvatning til að halda áfram á sömu braut,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

Að Hvatningarverðlaunum jafnréttismála standa Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð, Háskóli Íslands, Samtök atvinnulífsins og UN Women á Íslandi. 

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, Selma Svavarsdóttir, forstöðumaður á mannauðssviði Landsvirkjunar og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins eru á meðfylgjandi mynd sem tekin var við afhendingu Hvatningarverðlauna jafnréttismála í morgun.

Samtök atvinnulífsins