1 MIN
Kynslóðasáttmálann má ekki rjúfa
Undanfarið hafa ýmsar hugmyndir verið reifaðar um hvernig bæta megi afkomu ríkissjóðs og fjármagna brýn verkefni. Ein þeirra lýtur að því skattleggja iðgjald til lífeyrissjóðanna við inngreiðslu í stað þess að greiða skatt af lífeyri þegar hann kemur til útgreiðslu. Hafa þessar hugmyndir verið kynntar sem einhvers konar töfralausn, fundið fé sem hvorki muni hafa áhrif á afkomu lífeyrisþega né afkomu ríkissjóðs til framtíðar. Það er alrangt. Slíkar hugmyndir væru ekkert minna en afturför lífeyrismála á Íslandi og upptaka á vandamálum sem margar aðrar þjóðir standa frammi fyrir með verulega neikvæðum áhrifum á kjör eldra fólks og útgjöld hins opinbera.
Meginkostur íslenska lífeyriskerfisins er að hver kynslóð stendur undir eigin lífeyri og hluta þeirrar þjónustu sem hún nýtur með skattgreiðslum af honum. Þetta er einkar mikilvægt nú þegar miklar breytingar eru að verða á aldurssamsetningu þjóðarinnar, fólki á vinnualdri fækkar og lífeyristökum fjölgar. Í dag eru um sex vinnandi einstaklingar á móti hverjum eftirlaunataka. Viðbúið er að eftir 25 ár verði einungis þrír vinnandi á móti hverjum eftirlaunataka.
Í dag greiða atvinnurekendur og launafólk reglulega af launum í lífeyrissjóði fyrir hvern starfsmann. Við inngreiðslu er fjárhæðin ekki skattlögð, heldur látin ávaxtast óskert þar til taka lífeyris hefst. Lífeyristakar greiða því skatt þegar þeir taka eftirlaun sín út úr lífeyrissjóðum. Þannig nýtist lífeyrir ekki eingöngu til framfærslu lífeyristaka heldur fjármagnar við útgreiðslu með sköttum samneyslu samfélagsins á hverjum tíma. Sé þessi skattur innheimtur á meðan fólk er á vinnumarkaði er ljóst að framtíðarkynslóðir munu bera mun þyngri skattbyrði en ella eða að opinber þjónusta verður af skornari skammti. Breyting í þessa veru hefði því í reynd í för með sér að hluta lífeyrissparnaðarins yrði breytt úr sjóðsöfnun í gegnumstreymi sem væri í hrópandi mótsögn við tilgang lífeyriskerfisins og allar alþjóðlegar ráðleggingar til áratuga.
Íslenska lífeyriskerfið var byggt upp af framsýni og hefur staðist tímans tönn.
Óhjákvæmilega verða lífeyrisgreiðslur úr lífeyrissjóðum lægri ef lægra hlutfall iðgjalda er ávaxtað hjá lífeyrissjóðum. Þetta mun þýða að framtíðarútgjöld í almannatryggingakerfinu, sem fjármögnuð eru með skatttekjum á hverjum tíma, verða hærri, sem enn mun þyngja skattbyrði komandi kynslóða eða rýra verulega kjör lífeyristaka framtíðarinnar.
Íslenska lífeyriskerfið var byggt upp af framsýni og hefur staðist tímans tönn. Það sést best á því að lífeyrissjóðirnir standa undir meginhluta lífeyristekna almennings sem stöðugt fara vaxandi. Alþjóðlega er litið til okkar þegar kemur að árangri við að tryggja afkomu lífeyristaka og ekki síst hvað varðar sjálfbærni lífeyriskerfisins til framtíðar. Lífeyriskerfið er margþætt og stendur frammi fyrir ýmsum áskorunum og verkefnið nú sem hingað til að halda áfram að bæta kerfið og vera vakandi fyrir því sem gera má betur. Ekki síst þegar kemur að því að standa vörð um hagsmuni sjóðfélaga bæði í nútíð og framtíð.
Hugmyndir um skattlagningu lífeyrisiðgjalds við inngreiðslu er ekki hluti af því verkefni því þær eru í reynd tillaga um stórkostlegan tilflutning á skattbyrði á milli kynslóða og aðför að kjörum og velferð hvort tveggja lífeyristaka og vinnandi fólks til framtíðar.
Lífeyriskerfi Íslendinga stendur vel og er sjálfbært. Við skulum standa vörð um eitt besta lífeyriskerfi í heimi og ekki láta skammtímasjónarmið raska grundvallarstoð kerfisins.
Greinin birtist fyrst á Vísi þann 14. nóvember.