1 MIN
Kastljósinu varpað á aðalatriðin
Síðastliðinn fimmtudag efndu Samtök atvinnulífsins til kosningafundar í Sykursal Grósku þar sem kastljósinu var varpað á framtíðarsýn atvinnulífsins og rýnt í niðurstöður úr oddvitakönnun á vegum samtakanna.
Fundurinn var vel sóttur og svöruðu formenn flokka spurningum sem sneru að aðalatriðum atvinnulífsins: stöðugleika, orku og samkeppnishæfni. Einnig var slegið á létta strengi með fundargestum þar sem aukaatriðin voru undir kastljósinu. Eitt af hitamálunum var m.a. hvort fólk kjósi svarta eða brúna skó með jakkafötum.
Við þökkum formönnum flokka og öðrum góðum gestum kærlega fyrir þátttökuna.