Fréttir - 

26. apríl 2017

Jens Garðar Helgason nýr varaformaður SA

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Jens Garðar Helgason nýr varaformaður SA

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins sem fram fór í dag var Jens Garðar Helgason kjörinn varaformaður SA fyrir starfsárið 2017-2018. Jens Garðar er formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og framkvæmdastjóri Fiskimiða. Jens Garðar hefur átt sæti í framkvæmdastjórn SA frá árinu 2015. Jens Garðar tekur við af Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem verið hefur varaformaður SA frá 2015.

Í dag var ný framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins einnig kosin fyrir starfsárið 2017-2018.

Árni Sigurjónsson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Lilja Björk Einarsdóttir koma ný inn í framkvæmdastjórnina.

Framkvæmdastjórn SA 2017-2018

Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður.

Jens Garðar Helgason, varaformaður.

Árni Sigurjónsson.

Grímur Sæmundsen.

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir.

Lilja Björk Einarsdóttir.

Margrét Sanders.

Samtök atvinnulífsins