Menntamál - 

15. febrúar 2018

Iceland Travel menntafyrirtæki ársins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Iceland Travel menntafyrirtæki ársins

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt í dag. Iceland Travel er menntafyrirtæki ársins 2018. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar afhenti verðlaunin á árlegum menntadegi atvinnulífsins sem var haldinn í Hörpu.

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt í dag. Iceland Travel er menntafyrirtæki ársins 2018. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar afhenti verðlaunin á árlegum menntadegi atvinnulífsins sem var haldinn í Hörpu.

Iceland Travel er leiðandi ferðaskrifstofa í móttöku erlendra ferðamanna sem byggir á áratuga reynslu. Ársveltan stefnir í 14 milljarða og farþegar sem koma til Íslands á vegum Iceland Travel eru eitt hundrað og fimmtíu þúsund. Átta af hverjum tíu starfsmanna fyrirtækisins hafa lokið háskólaprófi, flestir af viðskipta, ferðamála- eða tungumálabrautum.



Ásdís Guðmundsdóttir, fræðslustjóri, Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála- iðnaðar og nýsköpunar og Ragnheiður Valdimarsdóttir, mannauðsstjóri.

„Það er mikill heiður að fá Menntaverðlaun atvinnulífsins. Þekking og færni starfsfólks er lykilatriði fyrir þjónustufyrirtæki eins og Iceland Travel sem starfar í harðri alþjóðlegri samkeppni. Við höfum því lagt mikla áherslu á þennan þátt í starfsemi okkar.

Fræðslustarf okkar hefur verið rekið undir merkjum Iceland Travel skólans. Þar hafa fjölmargir utanaðkomandi sérfræðingar á sínu sviði kennt námskeið og haldið fyrirlestra. Skólinn hefur einnig verið góður vettvangur fyrir starfsfólk að miðla af þekkingu sinni og reynslu. Hjá þeim 200 starfsmönnum sem starfa hjá Iceland Travel er hafsjór þekkingar á Íslandi sem áfangastað, markaðsmálum og ferðamálum. Verðlaunin er okkur mikil hvatning  að halda áfram á þessari braut,“ segir Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Iceland Travel en stjórnendur Iceland Travel líta á fræðslu og starfsþróun starfsmanna sem fjárfestingu í framtíðinni enda hefur það skilað sýnilegum árangri.

Landsnet er menntasproti ársins

Landsnet er menntasproti ársins 2018. Allan sólarhringinn vinna starfsmenn í stjórnstöð fyrirtækisins við að stýra raforkukerfi Íslands sem er flóknasta kerfi landsins. Landsnet ber einnig ábyrgð á því að sinna viðhaldi þess og rekstri þannig að það virki, að tryggja að landsmenn geti haft ljósin kveikt þegar þeim hentar og að hjól atvinnulífsins snúist.

„Við erum stolt af því að hafa fengið þessa viðurkenningu og lítum á hana sem hvatningu til að gera enn betur. Hjá okkar starfar frábær hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn sem vinnur að flóknum og  áhugaverðum verkefnum sem lúta að þróun, uppbyggingu og rekstri raforkukerfisins.  Við flytjum rafmagn alla daga og vinnum stundum við hættulegar aðstæður. Í því samhengi skiptir menntun og þjálfun miklu máli – með góðum vinnustað náum við þeim markmiðum sem við höfum sett okkur en það er tryggja okkur öllum rafmagnaða framtíð.“  Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets.


Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs, Valka Jónsdóttir starfsmannastjóri, Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála- iðnaðar og nýsköpunar , Íris Baldursdóttir framkvæmdastjóri kerfisstjórnunarsviðs, Halldór Halldórsson öryggisstjóri, Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi.

Hjá Landsneti vinna um 120 starfsmenn og fyrirtækið er með starfsstöðvar í Reykjavík,  á Akureyri og Egilsstöðum. Landsnet vinnur með Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Rafiðnaðarskólanum og nemendum býðst að vinna hagnýt lokaverkefni sem nýtast samfélaginu.

Fyrirtækið tekur einnig þátt í mikilvægum erlendum rannsóknarverkefnum. Til dæmis stærsta rannsóknarverkefni sinnar tegundar í heiminum sem kostar um 14 milljónir evra og miðar að því að auka áreiðanleika flutningskerfa á sama tíma og kostnaði samfélagsins er haldið í lágmarki.

Í dómnefnd sátu Guðný B. Hauksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Alcoa Fjarðaáli sem var menntafyrirtæki ársins 2017, Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels sem var Menntafyrirtæki ársins 2016, Sigurður Steinn Einarsson aðsstoðarmaður forstjóra hjá Síldarvinnslunni á Neskaupstað sem var Menntasproti ársins 2015 og Ragnheiður H. Magnúsdóttir viðskiptastjóri hjá Marel sem var menntafyrirtæki ársins 2014.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. Hjá aðildarfyrirtækjum samtakanna starfar um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði, rúmlega 100 þúsund manns.

Samtök atvinnulífsins