Fréttir - 

22. október 2024

Í beinni: Umhverfisdagur atvinnulífsins 2024

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Í beinni: Umhverfisdagur atvinnulífsins 2024

Atvinnulífið leiðir

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2024 er haldinn í dag þriðjudaginn 22. október á Hilton Nordica kl. 13:00 - 16:00 undir yfirskriftinni Atvinnulífið leiðir. Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SAF, Samorku, SFF, SFS, SI og SVÞ.

Dagurinn í ár er tileinkaður leiðandi atvinnulífi á sviði grænna lausna. Hin árlegu Umhverfisverðlaun atvinnulífsins verða veitt hátíðlega fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Framtak ársins.

Í kjölfarið taka við tvær lotur af lifandi og skemmtilegum málstofum og í ár gefst gestum tækifæri til að velja um eina af fjórum málstofum í hvorri lotu. Þar munu fjölbreyttir fulltrúar aðildarsamtaka koma saman til að ræða stöðu atvinnulífsins, áskoranir og horfur til framtíðar.

Hér má horfa á fundinn í beinu streymi milli 13:00 - 14:00:

Samtök atvinnulífsins