1 MIN
Í beinni: Ársfundur atvinnulífsins 2026
Ársfundur atvinnulífsins 2026 hefst kl. 15:00 í Silfurbergi í Hörpu. Beint streymi frá ársfundinum er í spilaranum hér að ofan.
Ársfundurinn er stærsti árlegi viðburður Samtaka atvinnulífsins. Yfirskriftin í ár er Sækjum fram og verður sjónum beint að vinnumarkaðslíkaninu og samkeppnishæfni Íslands.
Hvernig sköpum við forsendur fyrir stöðugleika, kaupmætti og samkeppnishæfu atvinnulífi? Ákvarðanir á vinnumarkaði hafa áhrif á hvert einasta fyrirtæki í landinu og á hagkerfið í heild sinni. En þjóna leikreglurnar fyrirtækjum og almenningi nægilega vel?
Dagskrá fundarins:
- Ávarp frá Jóni Ólafi Halldórssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins.
- Ávarp frá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands.
- Pallborðsumræður: Hvað þarf til að sækja fram?
Þátttakendur í pallborði: Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim, Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, Skúli Mogensen, frumkvöðull, og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku. Stjórnandi: Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs SA. - Ávarp frá Rannveigu Rist, fyrrverandi forstjóra Rio Tinto á Íslandi.
- Pallborðsumræður: Hvernig rjúfum við vítahringinn?
Þátttakendur í pallborði: Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri og fyrrverandi ríkissáttasemjari, Gylfi Jónu Arnbjarnarson, ráðgjafi og fyrrverandi forseti ASÍ, og Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, forstjóri Hornsteins og fyrrverandi framkvæmdastjóri SA. Stjórnandi: Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA. - Sækjum fram, erindi frá Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra SA.