1 MIN
Hvar er kröfugerðin?
Félagsmenn sex aðildarfélaga Kennarasambands Íslands hafa samþykkt skæruverkföll í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum, einum framhaldsskóla og einum tónlistarskóla. Kosið var um verkföll og þau samþykkt án þess að skýr kröfugerð hafi verið lögð fram.
Kennarar gegna lykilhlutverki í íslensku samfélagi og við eigum öll okkar uppáhalds kennara. Skólaganga mín í Njarðvíkurskóla er mér mjög eftirminnileg, Sigríður yfirkennari innrætti mér aga, Margrét Sanders kenndi mér lífsgildi sem standa með mér ævilangt og Erlingur stærðfræðikennari sat með mér á laugardögum svo ég gæti sleppt úr skólaári og farið áhyggjulaus í framhaldsskóla.
Kennarar eru til fyrirmyndar og ég öfunda þau af því að fá að kenna.
Það eru því mikil vonbrigði að samninganefnd kennara og forysta kennarasambandsins grípi nú til skæruverkfalla með tilheyrandi röskun á skólastarfi og óvissu án þess að leggja fram skýrar kröfur í kjarasamningum. Það er forsenda lögmætrar verkfallsboðunar að skýrar kröfur liggi fyrir sem viðsemjandi sé í stöðu til að verða við. Vegna alvarlegra áhrifa verkfalla á nemendur, foreldra og atvinnulíf er mikilvægt að viðsemjendur í karphúsinu upplýsi um hvort skilyrði lögmætrar vinnustöðvunar séu til staðar.
Mikilvægasta verkefni samfélagsins þessa dagana er að ná tökum á verðbólgunni svo vextir geti lækkað.
Mikilvægasta verkefni samfélagsins þessa dagana er að ná tökum á verðbólgunni svo vextir geti lækkað. Verðbólga og vextir á Íslandi standa verðmætasköpun fyrir þrifum og þeir koma hart niður á heimilum landsins. Efnahagslegur stöðugleiki þýðir að fólk og fyrirtæki geti gert framtíðaráætlanir sem halda en hann kemur svo sannarlega ekki af sjálfu sér. Við þurfum að vera samtaka, sýna hugrekki og vera tilbúin til þess að reyna á okkur svo árangur sjáist.
Á almennum vinnumarkaði var það hugrekki sýnt fyrr á árinu þegar samið var um fjögurra ára kjarasamning, almenna 3,25-3,5% hækkun að lágmarki 23.750 krónur. Stjórnvöld tóku ákvarðanir um að verða við beiðni verkalýðshreyfingarinnar um aðgerðir til þess að styðja við gerð kjarasamninganna, þær aðgerðir voru líka fyrir kennara.
Almennur vinnumarkaður er í harðri samkeppni við hið opinbera um starfsfólk. Réttindi opinberra starfsmanna hafa þar sitt að segja. Á opinbera markaðinum er minni vinnuskylda, meira orlof, meiri veikindaréttur, meira starfsöryggi og rík uppsagnarvernd. Það eru kostnaðarliðir sem horfa verður til þegar heildarkjör eru borin saman við almennan vinnumarkað.
Undirstaða opinbers reksturs er verðmætasköpun í atvinnulífinu. Því er mikilvægt að hinn almenni vinnumarkaður leiði launaþróun og kjarasamningar opinberra starfsmanna raski ekki þeirri kjarasátt sem náðist fyrr á árinu og markmiðum um lækkun verðbólgu og vaxta.
Greinin birtist fyrst á Vísi.is þann 17. október.