Samkeppnishæfni - 

24. október 2018

HÍ nýr samstarfsaðili Hvatningarverðlauna jafnréttismála

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

HÍ nýr samstarfsaðili Hvatningarverðlauna jafnréttismála

Háskóli Íslands hefur bæst í hóp samstarfsaðila Hvatningarverðlauna jafnréttismála. Samtök atvinnulífsins, landsnefnd UN Women, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið komu á fót verðlaununum árið 2014 til að vekja já­kvæða at­hygli á fyr­ir­tækj­um sem stuðlað hafa að jafn­rétti á mark­viss­an hátt inn­an sinna fyr­ir­tækja og jafn­framt að hvetja önn­ur fyr­ir­tæki til að gera slíkt hið sama. Verðlaunin eru afhent árlega þeim fyrirtækjum sem þykja skara fram úr í jafnréttismálum og hlaut Vodafone verðlaunin í fyrra. Hægt er að senda inn tilnefningar í tölvupósti á netfangið verdlaun@sa.is til 10. nóvember næstkomandi.

„Það er mér sönn ánægja að Háskóli Íslands sé hluti af þessu samstarfsverkefni. Sameinast þar rík áhersla háskólans á jafnréttismál svo og samvinna við samfélag og atvinnulífið. Það er því mjög í takt við stefnu skólans að koma að slíku verkefni sem stuðlað getur að aukinni áherslu á jafnréttismál í íslensku atvinnulífi,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

Hvatningaverðlaun jafnréttismála verða afhent í fimmta sinn á opnum fundi um jafnréttismál sem ber yfirskriftina, „Metoo! -  og hvað svo!“ og fer fram í Hátíðasal Há­skóla Íslands 19. nóvember kl. 8.30-10. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun afhenda verðlaunin. Á fundinum munu framsögumenn ræða um áhrif Metoo! byltingarinnar á vinnustaði hér á landi. Rektor Háskóla Íslands mun stýra fundi.

Nánar um Hvatningarverðlaun jafnréttismála:

Leitað er eftir tilnefningum fyrirtækja sem leggja áherslu á neðangreinda þætti í sinni starfsemi:

  • Tekið er mið af jafnréttismálum í allri stefnumótun fyrirtækisins.
  • Jafnrétti kynjanna er í hávegum haft í innri og ytri samskiptum fyrirtækisins.
  • Jöfn hlutföll kynjanna í stjórn, stjórnendastöðum og öðrum almennum stöðum.
  • Auknum möguleikum beggja kynja til  starfsframa. 
  • Jöfnum launum kynjanna. 
  • Aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið.

 Sérstaklega er leitað að fyrirtækjum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:  

  • Stefna fyrirtækis í jafnréttismálum hefur skýran tilgang og markmið.
  • Jafnrétti hefur fest rætur og sýnt er fram á varanleika.
  • Vakin er athygli á rekstrarlegum ávinningi af jafnrétti. 
  • Jafnréttissýnin er hvetjandi fyrir önnur fyrirtæki.
  • Sýnt frumkvæði og nýsköpun sem stuðlar að auknu jafnrétti kynjanna.

Á meðfylgjandi mynd eru Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og Erla Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Festu.

Samtök atvinnulífsins