23. nóvember 2026

Hámarkssekt gæti orðið nær þreföld ársvelta

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hámarkssekt gæti orðið nær þreföld ársvelta

Fyrirtæki sem veltir 100 milljónum króna á ári gæti samkvæmt frumvarpi um neytendasamninga sætt allt að 290 milljóna króna sekt. Í dag er sektarhámarkið 10 milljónir króna. Samtök atvinnulífsins styðja að neytendavernd fylgi þróun í netviðskiptum en telja að stjórnvöld hafi ekki sýnt fram á þörf fyrir svo víðtækar sektarheimildir.

Hvernig er hámarkið reiknað?

Samkvæmt frumvarpinu á að miða hámarkssekt við þá fjárhæð sem er hærri, 4% af ársveltu fyrirtækis eða jafnvirði tveggja milljóna evra. Fjögur prósent af 100 milljóna króna ársveltu eru fjórar milljónir króna. Í dæmi SA ræður því evruviðmiðið og hámarkið verður um 290 milljónir króna. Það er rúmlega sjötíu sinnum hærra en ef eingöngu væri miðað við 4% af veltu.

Í umsögn til Alþingis benda SA á að samkvæmt Evróputilskipuninni eigi evruviðmiðið aðeins við þegar upplýsingar um veltu liggja ekki fyrir. Kröfur tilskipunarinnar um sektarhámark eiga jafnframt aðeins við um samræmdar aðgerðir vegna víðtækra brota yfir landamæri. Frumvarpið lætur sama hámark ná til brota sem eiga sér eingöngu stað hér á landi. Í greinargerðinni eru ekki birt gögn eða dæmi um að gildandi hámark hafi reynst of lágt.

Vefverslanir þurfa tíma til að laga sig að reglunum

Verði frumvarpið samþykkt óbreytt taka nýjar skyldur og hærra sektarhámark gildi samtímis. SA leggja til að fyrirtæki fái tíma til að uppfæra vefverslanir, skilmála og upplýsingar til viðskiptavina. Þá vilja samtökin undanskilja brot gegn ákvörðunum Neytendastofu frá veltutengda sektarhámarkinu enda geti stofnunin þegar beitt dagsektum til að fylgja ákvörðunum sínum eftir.

Samtök atvinnulífsins