21. mars 2025

Hækkun lágmarkskauptaxta í kjarasamningum SA

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hækkun lágmarkskauptaxta í kjarasamningum SA

Lágmarkskauptaxtar hækka um 0,58% frá 1. apríl 2025

Lágmarkskauptaxtar kjarasamninga hækka um 0,58% frá 1. apríl 2025. Almenn laun hækka ekki, þ.e. launakjör starfsfólks sem samið hefur um hærri laun en samkvæmt lágmarkskauptöxtum kjarasamninga.

Í Stöðugleikasamningnum sem undirritaður var í mars 2024 var samið um svokallaðan kauptaxtaauka sem felur í sér að á samningstímanum er árlega borin saman hlutfallsleg hækkun launavísitölu á almennum markaði og ákveðins viðmiðunartaxta á sama tímabili. Ef vísitalan hefur hækkað meira en viðkomandi launataxti kemur til greiðslu kauptaxtaauka sem nemur hlutfallslegum mun hækkana vísitölunnar og viðmiðunartaxtans.

Launavísitala á almennum markaði á viðmiðunartímabilinu, nóv.23-nóv.24 hækkaði um 6,51%, á sama tíma hækkaði viðmiðunartaxtinn, 4 launaflokkur í kjarasamningum SA og SGS/Eflingar, um 5,90%. Hlutfallslegur munur á þessum hækkunum er 1,0651/1,059 -1 = 0,58%.

Meginmarkmið stöðugleikasamningsins er að stuðla að minnkun verðbólgu og lækkun vaxta ásamt því að auka kaupmátt launafólks, skapa fyrirsjáanleika í efnahagslífinu, draga úr verðbólguvæntingum og styrkja samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Í samræmi við ákvæði stöðuleikasamningsins kom launa- og forsendunefnd, skipuð fulltrúum samningsaðila, saman fyrr í þessum mánuði til að úrskurða um kauptaxtaaukann ásamt því að fylgjast með þeim þáttum efnahagslífsins sem áhrif geta haft á markmið samningsins.

Uppfærð kaupgjaldsskrá verður birt á vefnum innan tíðar.

Yfirlýsing launa- og forsendunefndar er eftirfarandi:

Kauptaxtaauki tekur gildi 1. apríl

Launa- og forsendunefnd kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem skipuð er fulltrúum frá ASÍ og SA, kom saman til fyrsta fundar föstudaginn 7. mars. Á fundinum var úrskurðað að kauptaxtaauki virkjist frá og með 1. apríl næstkomandi. Kauptaxtaaukinn felur í sér að kauptaxtar kjarasamninga hækki um 0,58% frá og með 1. apríl og skýrist af því að launavísitala á almennum markaði hækkaði umfram umsamdar taxtahækkanir viðmiðunartaxtans á fyrsta tímabili stöðugleikasamningsins.

Nefndinni, sem starfar samkvæmt kjarasamningum á árunum 2024-2028, ber að fylgjast með framvindu efnahagslífs og mögulegum áhrifum á markmið samninga um minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Nefndinni ber jafnframt að leggja mat á samningsforsendur í september 2025 og september 2026.

Verðbólga gengið niður og kaupmáttur aukist

Meginmarkmið samninganna er að stuðla að minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Verðbólga mældist um 8% þegar undirbúningur kjarasamninga hófst haustið 2023. Forsendunefndin er sammála um að árangur samninganna hafi verið merkjanlegur, verðbólga mælist í dag 4,2% en 2,7% ef horft er fram hjá áhrifum húsnæðisverðs. Kaupmáttur launa hefur aukist á fyrsta ári samnings.

Seðlabankinn hóf vaxtalækkunarferli í október síðastliðnum og hafa stýrivextir lækkað um 1,50 prósentur frá gerð samninga. Á sama tíma hefur aðhald peningastefnunnar aukist og raunvextir hækkað.

Aukin óvissa um efnahagshorfur

Forsendur eru fyrir áframhaldandi hjöðnun verðbólgu á næstu mánuðum og þar með frekari lækkun vaxta. Hins vegar hefur alþjóðleg óvissa um efnahagshorfur aukist og hætta á að Ísland verði fyrir áhrifum af vaxandi átökum á alþjóðavettvangi og viðskiptastríðum. Forsendunefndin telur mikilvægt að stjórnvöld, Seðlabanki Íslands og fyrirtæki vinni áfram að markmiðum samninganna og skapi þannig forsendur fyrir áframhaldandi minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Þar telur nefndin brýnt að ríki og sveitarfélög vinni með peningastefnunni, gæti hófs í álagningu gjalda og taki markviss skref í íbúðauppbyggingu.

Hægt er að skoða nýju kaupgjaldsskránna í heild sinni á vinnumarkaðsvef SA.

Samtök atvinnulífsins