04. nóvember 2026

Hæfnigreiningar og Fagbréf atvinnulífsins styrkja íslenskt atvinnulíf

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hæfnigreiningar og Fagbréf atvinnulífsins styrkja íslenskt atvinnulíf

Nám á vinnustað og efling hæfni í atvinnulífinu voru í brennidepli á norrænu ráðstefnunni Vinnum, lærum, þróumst sem haldin var á Hilton Reykjavík 20. október síðastliðinn. Þar komu saman fulltrúar atvinnulífs, menntastofnana og sérfræðingar frá Norðurlöndunum til að ræða hvernig efla megi nám alla ævi og mæta breytilegum hæfnikröfum á vinnumarkaði.

Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins, flutti erindi á málstofu um Fagbréf atvinnulífsins og ávinning atvinnurekenda af hæfnigreiningum starfa. Hún fjallaði um hvernig greining á hæfnikröfum starfa getur hjálpað fyrirtækjum að kortleggja hæfniþörf, nýta betur þekkingu og reynslu starfsfólks og beina fræðslu og þjálfun þangað sem hennar er helst þörf. Fagbréf atvinnulífsins gera hæfni sem fólk hefur öðlast í starfi sýnilega og staðfesta hana með raunfærnimati á móti hæfnikröfum starfs. Í kjölfarið er boðið upp á markvissa þjálfun til að brúa það sem upp á vantar. Þannig geta hæfnigreiningar og fagbréf stutt við starfsþróun, aukið gæði og styrkt getu fyrirtækja til að takast á við hraðar breytingar á vinnumarkaði.

Ásamt Maj-Britt voru Jakob Tryggvason formaður RSÍ og Haukur Harðarson sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins með innlegg á málstofunni.

Samtök atvinnulífsins