1 MIN
Grindavík - við erum til staðar
SA eru fyrirtækjum innan handar
Samtök atvinnulífsins liðsinna aðildarfyrirtækjum í því óvissustigi sem nú ríkir í Grindavík. SA leggja áherslu á að vera fyrirtækjum innan handar hvað varðar réttindi og skyldur gagnvart starfsmönnum, fylgjast með og miðla upplýsingum frá viðeigandi aðilum ásamt því að vera í sambandi við stjórnvöld.
Atvinnulífið mun finna fyrir þessum hamförum og afleiðingum þeirra eins og samfélagið allt. Nú reynir á samstöðu þjóðarinnar.
Við hvetjum öll fyrirtæki í Grindavík og hlutaðeigandi til að mæta á upplýsingafund okkar kl. 14:00 í dag sem boðaður var í tölvupósti til forsvarsmanna. Jón Örvar Bjarnason, sviðsstjóri vátryggingasviðs Náttúruhamfaratrygginga og Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA fara þar vel yfir stöðuna.
Hér má nálgast svör við algengum spurningum um réttindi og skyldur atvinnurekenda í náttúruhamförum . Síðan verður í stöðugri uppfærslu á næstu dögum og vikum.