28. júlí 2026

Fullveldi vegur þyngst - Aukin andstaða atvinnulífsins við ESB-aðild

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fullveldi vegur þyngst - Aukin andstaða atvinnulífsins við ESB-aðild

Andstaða aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins við aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur aukist frá fyrri könnunum. Ný könnun Gallup meðal aðildarfyrirtækja SA sýnir jafnframt að fullveldi Íslands er sá þáttur sem vegur þyngst í afstöðu fyrirtækja.

Alls segjast 66% aðildarfyrirtækja vera andvíg því að Ísland gangi í Evrópusambandið samanborið við 60% í síðustu könnun. Þá eru 22% hlynnt aðild en 12% taka ekki afstöðu.

Svipuð þróun kemur fram þegar spurt er um upptöku evru. Nú segjast 54% aðildarfyrirtækja vera andvíg upptöku evru en 36% hlynnt.

Fullveldi vegur þyngst

Þegar spurt var hvaða sjónarmið hefðu mest áhrif á afstöðu til aðildar kom fullveldi Íslands langsterkast fram. Næst á eftir fylgja sjónarmið sem tengjast yfirráðum yfir náttúruauðlindum, regluverki Evrópusambandsins, sjálfstæðu ákvörðunarvaldi Íslands og efnahagslegu svigrúmi, meðal annars þegar kemur að vöxtum og verðbólgu.

Greining sýnir að þessi sjónarmið koma fram víða í atvinnulífinu. Þótt áherslur séu mismunandi milli atvinnugreina eru fullveldi, sjálfstætt ákvörðunarvald og stjórn yfir auðlindum meðal þeirra atriða sem oftast eru nefnd. Sérstaklega leggja fyrirtæki í sjávarútvegi ríka áherslu á auðlindamál en fullveldi er áberandi hjá fyrirtækjum í öðrum greinum, þar á meðal í iðnaði, verslun, þjónustu og ferðaþjónustu.

Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar eftir stærð fyrirtækja kemur fram sambærileg mynd. Hvort sem um er að ræða lítil, meðalstór eða stór fyrirtæki eru það sömu grunnsjónarmið sem ráða mestu um afstöðuna. Það bendir til þess að andstaðan sé ekki bundin við ákveðna tegund fyrirtækja heldur endurspegli víðtæk viðhorf innan íslensks atvinnulífs.

Meirihluti andvígur í öllum landshlutum

Afstaðan er einnig skýr þegar litið er til landshluta. Þrátt fyrir mismunandi styrkleika milli landshluta er meirihluti fyrirtækja í öllum landshlutum andvígur ESB-aðild. Það undirstrikar að niðurstöðurnar endurspegla ekki afstöðu einstakra svæða heldur breið viðhorf meðal aðildarfyrirtækja SA um land allt.

Breytt afstaða frá fyrri könnunum

Könnunin sem Gallup gerði fyrir Samtök atvinnulífsins í fyrri hluta júlí gefur mikilvæga innsýn í þau atriði sem fyrirtæki telja skipta mestu máli í umræðunni um framtíðarskipan Íslands gagnvart Evrópusambandinu.

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir mikilvægt að umræðan um aðild að Evrópusambandinu taki mið af þeim sjónarmiðum sem fyrirtækin sjálf leggja mesta áherslu á.

„Í umræðunni hefur því verið haldið fram að andstaða atvinnulífsins við ESB-aðild skýrist af ótta við aukna samkeppni og að mörg fyrirtæki kunni vel við sig í umhverfi verðbólgu. En þessi er öfugt farið, verðbólga eykur kostnað, sóar tækifærum og er andstæða stöðugleika og fyrirsjáanleika sem fyrirtæki vilja. Samtök atvinnulífsins hafa ávallt beitt sér fyrir umhverfi heilbrigðrar samkeppni,“ segir Bjarni. „Könnunin sýnir að andstaða aðildarfyrirtækja við ESB-aðild hefur aukist frá fyrri mælingum. Það sem vekur þó ekki síður athygli er að fyrirtækin nefna fyrst og fremst fullveldi Íslands, stjórn yfir eigin auðlindum og sjálfstætt ákvörðunarvald sem ástæður fyrir afstöðu sinni. Það eru skilaboð sem ætti að taka alvarlega.“

Samtök atvinnulífsins