10. ágúst 2026

Fleiri andvígir aðild en fylgjandi í öllum atvinnugreinum

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fleiri andvígir aðild en fylgjandi í öllum atvinnugreinum

Greining Gallup á afstöðu aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins til aðildar Íslands að Evrópusambandinu sýnir að andstaða við aðild hefur aukist frá síðustu mælingu og er meirihluti fyrirtækja andvígur í öllum atvinnugreinum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

Alls segjast 66% aðildarfyrirtækja vera frekar eða mjög andvíg því að Ísland gangi í Evrópusambandið, samanborið við 56% í síðustu könnun. Þá segjast 22% vera frekar eða mjög hlynnt aðild en 12% taka ekki afstöðu.

Þegar niðurstöðurnar eru greindar eftir atvinnugreinum kemur í ljós að afstaðan er breytileg milli greina. Þrátt fyrir þann mun eru fleiri fyrirtæki andvíg en hlynnt aðild í öllum atvinnugreinum.

Minnst er andstaðan í tækni- og hugverkaiðnaði þar sem 48% fyrirtækja eru andvíg aðild en 38% hlynnt. Mest er andstaðan í sjávarútvegi, 91%. Þá eru 72% fyrirtækja í ferðaþjónustu andvíg aðild en 21% hlynnt. Meðal fyrirtækja í þjónustugreinum eru 61% andvíg aðild og 26% hlynnt.

Greiningin sýnir einnig að andstaðan er heldur meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu, þótt meirihluti fyrirtækja á báðum svæðum sé andvígur aðild. Á höfuðborgarsvæðinu segjast 63% fyrirtækja vera andvíg aðild en 72% fyrirtækja á landsbyggðinni.

Gallup framkvæmdi könnunina dagana 3.–15. júlí 2026. Könnunin var send til 1.808 aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins og bárust 737 svör, sem jafngildir 40,8% svarhlutfalli.

Samtök atvinnulífsins