Samkeppnishæfni - 

02. nóvember 2020

Fjölbreytni skiptir máli

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fjölbreytni skiptir máli

Aukin fjölbreytileiki hefur styrkt atvinnulífið. Samhliða jafnari stöðu kynja hefur fjölskrúðugt mannlíf dafnað á vinnustöðum. Þeim árangri ber að þakka þrotlausri baráttu og framsýnu fólki sem skynjaði kall tímans. Frelsun hinsegin fólks hefur stuðlað að heill og hamingju fjölda fólks sem áður læddust með veggjum. Þannig leystust úr læðingi kraftar og hæfileikar sem fela í sér mikil verðmæti.

Aukin fjölbreytileiki hefur styrkt atvinnulífið. Samhliða jafnari stöðu kynja hefur fjölskrúðugt mannlíf dafnað á vinnustöðum. Þeim árangri ber að þakka þrotlausri baráttu og framsýnu fólki sem skynjaði kall tímans. Frelsun hinsegin fólks hefur stuðlað að heill og hamingju fjölda fólks sem áður læddust með veggjum. Þannig leystust úr læðingi kraftar og hæfileikar sem fela í sér mikil verðmæti.

Frjáls för hefur stuðlað að auknum búferlaflutningum milli landa og samsetning landsmanna hefur breyst til frambúðar. Nýir Íslendingar auðga mannlífið, bæta eigin lífskjör og efla um leið hag okkar allra.

Sofnum ekki á verðinum

Í alþjóðlegum samanburði stendur íslenskt samfélag framarlega á flesta kvarða sem mæla jafnrétti kynja, mannréttindi og jákvæð viðhorf til innflytjenda. Því fögnum við, þótt ávallt megi gera betur. Óvarlegt er að líta á framfarir liðins tíma sem sjálfsagðan hlut.

Standa þarf vörð um frjálslynt og umburðarlynt samfélag. Dæmi um varhugaverða þróun og afturför í jafnréttis- og mannréttindamálum má víða finna í nálægum löndum. Vaxandi lýðhyggja í sumum vestrænum löndum eru holl áminning til okkar að hlúa vel að þessum málum.

Höldum áfram

Viðfangsefnin nú eru ærin og hætt við að skammtímasjónarmið yfirgnæfi annað. Heimsbyggðin stendur frammi fyrir plágu og meðfylgjandi kreppu. Í slíku ástandi má ekki missa sjónar á stóru myndinni. Rannsóknir sýna að aukinn fjölbreytileiki, eins og við höfum upplifað á skömmum tíma, stækkar grunn atvinnulífsins með því að sameina fólk með ólíka þekkingu, reynslu og hæfni. Við lærum hvert af öðru og treystum fleiri stoðir. Það styrkir atvinnulífið og eykur samkeppnishæfni. Saman vinnum við, fjölbreyttur og samhentur hópur, bug á erfiðleikunum.

Í nóvember munu SA beina sjónum sínum sérstaklega að kynjajafnrétti og fjölbreytni í íslensku atvinnulífi, til langrar framtíðar. Stefnt er að er stofnun Ungmennaráðs. Þar verður kallað eftir röddum ungs fólks í málefnastarfinu. Umræða um sveigjanleg starfslok verður sett á dagskrá, ekki síst með það í huga að dýrmæt þekking eldri starfsmanna nýtist atvinnulífinu til framdráttar.

Atvinnulífið vill finna verkefni fyrir alla. Um þessar mundir er sérstaklega litið til tækifæra fyrir fólk með skerta starfsgetu og fólks sem hefur lokið námi á starfsbraut framhaldsskóla og vilja takast á við verkefni á vinnumarkaði.

Hvatningaverðlaun jafnréttismála eru grein á þessum meiði og verða veitt síðar í mánuðinum. Þau eru til þess fallin að hampa fyrirtækjum sem eru til fyrirmyndar og verðskulda athygli fyrir árangursríkt jafnréttisstarf.

Verkefnið framundan er að kalla til fólk með mismunandi bakgrunn og af ólíkum kynjum til starfa í íslensku atvinnulífi. Við viljum fá að heyra fjölbreytt, uppbyggileg sjónarmið og efla gagnrýna hugsun.

Þannig aukum við verðmæti, velmegun og vellíðan í samfélaginu.

Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Greinin birtist fyrst á Vísi.

Samtök atvinnulífsins