Fréttir - 

05. desember 2017

Fjárfest í framtíðinni

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fjárfest í framtíðinni

Hvernig getur Global Compact, sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð og Heimsmarkmiðin 17 um betri heim opnað fyrirtækjum leið inn á nýja markaði á sama tíma og þau sýna samfélagsábyrgð í verki?

Hvernig getur Global Compact, sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð og Heimsmarkmiðin 17 um betri heim opnað fyrirtækjum leið inn á nýja markaði
á sama tíma og þau sýna samfélagsábyrgð í verki?

Opinn morgunfundur á Hilton Reykjavík Nordica. Þriðjudaginn 5. desember kl. 8.30-10.

Boðið verður upp á hagnýta vinnustofu um Global Compact að loknum fundi kl. 10.15-12.

Allir áhugasamir velkomnir – ekkert þátttökugjald.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér á vef SA.

DAGSKRÁ

Ábyrgt atvinnulíf
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Ábyrgar fjárfestingar
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri markaða hjá Landsbankanum

Heimsmarkmið S.Þ. og Ísland
Hildigunnur Engilbertsdóttir, sérfræðingur á þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins

Hvers vegna Global Compact?

EFLA verkfræðistofa
Ingunn Ólafssdóttir, mannauðsstjóri.

Isavia
Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður Verkefnastofu.

Fundarstjóri er Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri FÓLK

VINNUSTOFA UM SAMFÉLAGSÁBYRGÐ KL. 10.15-12

Hagnýt tæki og tól til að vinna með Global Compact og samfélagsábyrgð fyrirtækja

Erika Eriksson frá sænska ráðgjafafyrirtækinu Enact stýrir vinnustofunni.

Sjá nánari upplýsingar um Eriku

Nánari upplýsingar um Enact

Samtök atvinnulífsins eru tengiliður Íslands við Global Compact.

Að fundinum standa Samtök atvinnulífsins, Íslandsstofa, Festa og Global Compact Nordic Newtwork.

 

Umsóknarferli er lokið.

 

Samtök atvinnulífsins