09. mars 2024

Fagfélögin semja um stöðugleika

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fagfélögin semja um stöðugleika

Langtímasamningur hefur verið undirritaður milli Samtaka atvinnulífsins og Rafiðnaðarsambands Íslands, Matvís, VM og Grafíu – Fagfélaganna. Samningurinn gildir frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028. Með undirritun samningsins í dag hefur SA samið við drjúgan hluta félaga á almennum vinnumarkaði en sem kunnugt er kláruðust langtímasamningar við breiðfylkingu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði á dögunum. Viðræður við Fagfélögin hafa staðið yfir samhliða viðræðum við breiðfylkinguna og eiga Fagfélögin mikilvægan þátt í þeirri launastefnu sem hefur verið mótuð.

Tengt frétt

Stöðugleikasamningur í höfn
Lesa meira

„Það er afar ánægjulegt að ganga frá samningum við Fagfélögin í dag undir merkjum stöðugleika með það að marki að ná niður verðbólgu og skapa skilyrði til vaxtalækkana. Með þeim samningum sem nú hafa verið gerðir stöndum við frammi fyrir raunverulegu tækifæri til þess að ná efnahagslegum stöðugleika. Fjölmörg fyrirtæki hafa þegar stigið fram og sýnt stuðning við markmið samninganna í verki og bæði ríki og sveitafélög hafa jafnframt skuldbundið sig til þess að styðja við þau með því að draga úr gjaldskrárhækkunum.“ - Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA

Stöðugleikasamningurinn styður fyrrnefnd markmið samningsaðila, að stuðla að minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Af því leiðir að kaupmáttur eykst, aukinn fyrirsjáanleiki verður í efnahagslífinu, dregið er úr verðbólguvæntingum og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs styrkist. Slíkur stöðugleiki er eitt stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja á óvissutímum.

Samtaka um aukna hagsæld

Samningsaðilar hafa sett sér skýr markmið um að gera langtímakjarasamning sem stuðlar að minnkandi verðbólgu sem skapar skilyrði til þess að stýrivextir lækki. Forsendur kjarasamningsins taka mið af þeim markmiðum.

Til að styrkja forsendur og markmið kjarasamninganna mun sérstök launa- og forsendunefnd taka til starfa. Standist forsendur kjarasamninga ekki ber forsendu- og launanefnd að taka ákvörðun um viðbragð.

„Núna er tíminn til þess að tileinka okkur nýja nálgun til þess að verja lífskjör og skapa skilyrði fyrir fjárfestingu í frekari verðmætasköpun. Hagtölurnar sýna okkur að efnahagslegt svigrúm fyrir launahækkanir sem samræmast verðstöðugleika er á bilinu 3,5%-4%. Þar sem aðilum vinnumarkaðarins hefur lánast að gera langtímasamning í takt við efnahagslegt svigrúm er mikilvægt að enginn hlaupist undan merkjum. Nú þurfa allir að sýna ábyrgð í verki og stuðla að því að verðbólguvæntingar geti lækkað svo vextir geti fylgt í kjölfarið“ segir Sigríður Margrét.

Hér má kynna sér efni samnings SA við Fagfélögin:

Kynning

Samtök atvinnulífsins