Fréttir - 

15. maí 2024

Eyjólfur Árni endurkjörinn formaður

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Eyjólfur Árni endurkjörinn formaður

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fór fram í Húsi atvinnulífsins í dag. Eyjólfur Árni Rafnsson var endurkjörinn formaður SA, með 96,45% greiddra atkvæða, í rafrænni kosningu sem fór fram í aðdraganda fundarins.

Ný inn í stjórn samtakanna koma Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Eldingar hvalaskoðunar, Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri KS, Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Viator ehf. og Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar.

Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.

Hér má nálgast ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins 2023 -2024.

Eyjólfur Árni, formaður SA, ávarpaði fundargesti:

„Þegar vextir lækka skapast betri skilyrði fyrir fyrirtækin til að ráðast í fjárfestingar, endurnýja tækjabúnað og efla vöruþróun, nýsköpun og markaðssókn. Það er eina leiðin til að tryggja betri lífskjör hér á landi og til að halda í við nágrannaþjóðir okkar. Augljóst er að lægri vextir hafa jákvæð áhrif á heimilisbókhald fjölskyldna og að þessu leyti er fólkið í landinu og fyrirtækin í sama báti. Þessir sameiginlegu hagsmunir skiptu öllu máli við gerð Stöðugleikasamningsins.“

Samtök atvinnulífsins