1 MIN
Evrópskt atvinnulíf kallar eftir einfaldari reglum og hraðari leyfisveitingum
BusinessEurope, samtök atvinnulífsins í Evrópu, kalla eftir því að Litáen setji samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar í forgang þegar landið tekur við formennsku í ráði Evrópusambandsins um áramót. Í sameiginlegri yfirlýsingu formannaráðs BusinessEurope, sem fundaði í Vilníus 27. nóvember, leggja samtökin áherslu á einfaldari reglur, hraðari leyfisveitingar og öruggt framboð orku á samkeppnishæfu verði.
„Þegar fyrirtæki ákveður hvar það byggir næstu verksmiðju skiptir máli hvað orkan kostar, hversu langan tíma tekur að fá leyfi og hvort það getur treyst því að leikreglurnar haldi. Þetta þekkjum við vel hér á Íslandi. Viljum við að fyrirtæki fjárfesti hér og skapi vel launuð störf þurfum við að gera þeim kleift að ráðast í framkvæmdir. Þar getum við sjálf gert betur, meðal annars með því að einfalda leyfisveitingar og gæta þess að við bætum ekki óþarfa kröfum við þegar við innleiðum EES-reglur,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins.
BusinessEurope hefur lagt fram tæplega 140 tillögur um einföldun regluverks. Að mati samtakanna hafa stofnanir ESB hingað til aðeins tekið á 7% þeirra. Samtökin benda meðal annars á að fella megi niður kröfur um að fyrirtæki skili sömu upplýsingum oftar en einu sinni. Þau kalla einnig eftir því að ryðja úr vegi hindrunum í viðskiptum á innri markaðnum svo fyrirtæki eigi auðveldara með að sækja á nýja markaði og vaxa.

Agla Eir Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur á málefnasviði SA, Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, og Lilja Björk Guðmunsdóttir, yfirlögfræðingur SI.
Á fundinum ræddu fulltrúar atvinnulífsins þessar áherslur við Mindaugas Sinkevičius, forsætisráðherra Litáens, og Edvinas Grikšas, efnahags- og nýsköpunarráðherra landsins. Þeir funduðu jafnframt með Andrius Kubilius, sem fer með varnar- og geimmál í framkvæmdastjórn ESB. Í yfirlýsingunni leggja samtökin áherslu á að öflugur evrópskur iðnaður sé forsenda þess að Evrópa geti tryggt eigið öryggi og haldið áfram stuðningi við Úkraínu.
Fulltrúar SA á fundinum voru Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, og Agla Eir Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur á málefnasviði SA. Auk þeirra voru fulltrúar Samtaka iðnaðarins, Þorsteinn Víglundsson, formaður, og Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur samtakanna.