Vinnumarkaður - 

28. september 2020

Ekki aðeins ferðaþjónustukreppa

Kjarasamningar

Kjarasamningar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Ekki aðeins ferðaþjónustukreppa

Við undirritun Lífskjarasamnings í apríl 2019 var hagvaxtar að vænta á komandi árum og allt benti til þess að atvinnulífið gæti staðið undir þeim launahækkunum sem um var samið. Nú blasir við breyttur veruleiki. Sú dökka efnahagsmynd sem dregin hefur verið upp af Hagstofunni, Seðlabankanum og stjórnvöldum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru ber að taka alvarlega. Gerbreytt staða og óvissa um efnahagsframvindu kallar á viðbrögð. Ábyrgðin er aðila vinnumarkaðarins.

Við undirritun Lífskjarasamnings í apríl 2019 var hagvaxtar að vænta á komandi árum og allt benti til þess að atvinnulífið gæti staðið undir þeim launahækkunum sem um var samið. Nú blasir við breyttur veruleiki. Sú dökka efnahagsmynd sem dregin hefur verið upp af Hagstofunni, Seðlabankanum og stjórnvöldum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru ber að taka alvarlega. Gerbreytt staða og óvissa um efnahagsframvindu kallar á viðbrögð. Ábyrgðin er aðila vinnumarkaðarins.

Lífskjarasamningi var ætlað að deila aukinni verðmætasköpun með ákveðnum hætti miðað við gefnar forsendur um það sem yrði til skiptanna. Þær forsendur eru brostnar. Til að setja hlutina í samhengi þá gerir Hagstofan ráð fyrir að vænt verðmætasköpun verði ríflega 300 milljörðum króna minni á árinu 2021 en gert var ráð fyrir við undirritun samninga. Það er morgunljóst að lítil sem engin innistæða er fyrir 45 milljarða króna launahækkunum við slíkar kringumstæður.

Atvinnuleysi þvert á atvinnugreinar

Afleiðingar kórónukreppunnar eru víðtækar og faraldurinn hefur áhrif með beinum eða óbeinum hætti á langflestar atvinnugreinar. Samkvæmt Vinnumálastofnun mælist aukning í atvinnuleysi þvert á greinar. Um átján þúsund manns voru án vinnu í ágúst, að undanskildum þeim sem starfa í skertu starfshlutfalli. Mesta aukning atvinnuleysis hefur verið í ferðaþjónustu og tengdum greinum en einnig mælist veruleg aukning í öllum öðrum greinum einkageirans. Þannig hefur atvinnuleysi aukist um 90% í verslun frá því í ágúst í fyrra, um 130% í sérhæfðri þjónustu, 112% í iðnaði og 144% í mannvirkjagerð svo dæmi séu tekin. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir því að atvinnuleysi muni aukast enn frekar á komandi mánuðum og mælast hátt í 10% þegar á líður vetur. Kannanir SA um áform fyrirtækja til ráðninga benda í sömu átt. Staðan er grafalvarleg. Á vandanum þarf að taka.

Síðustu ár hafa einkennst af efnahagslegum stöðugleika sem skapað hefur færi á vaxtalækkunum, auknum kaupmætti og bættum lífskjörum. Miðað við óbreytta stefnu er slíkum stöðugleika ógnað. Frekari launahækkanir, á meðan mikil óvissa varir og djúp efnahagskreppa gengur yfir landið, mun gera illt verra. Að öðru óbreyttu mun atvinnuleysi aukast, verðbólga sömuleiðis og samdrátturinn í efnahagslífinu verður enn meiri en ella. Afleiðingarnar eru augljósar: Lakari lífskjör allra.

Vonandi ber okkur gæfa til þess að festast ekki í sömu gildrunni og svo oft áður í gegnum íslenska efnahagssögu. Ef vilji stendur til þess að standa vörð um störf og stöðugleika í landinu er nauðsynlegt að brugðist sé við.

Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Anna Hrefna Ingimundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins

Greinin birtist fyrst á Vísi 28. september 2020

Samtök atvinnulífsins