1 MIN
Boðuð einföldun verður að meiri flækju
Samtök atvinnulífsins gera alvarlegar athugasemdir við framkvæmd nýrra reglna um skýrslugjöf um kynbundinn launamun. Breytingar sem áttu að einfalda regluverk og draga úr kostnaði fyrirtækja leiða að mati samtakanna til flóknari krafna og aukinnar vinnu. SA hafa óskað eftir því að dómsmálaráðuneytið og Jafnréttisstofa tryggi að boðuð einföldun skili sér í framkvæmd.
Skylda til jafnlaunavottunar í fyrri mynd var aflögð með lagabreytingum sem tóku gildi 1. september síðastliðinn. Í stað hennar kom skýrslugjöf til Jafnréttisstofu á þriggja ára fresti fyrir fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði. Markmiðið var að gera framkvæmdina skilvirkari, hagkvæmari og gagnsærri.
SA fögnuðu einföldunaráformunum. Í erindi samtakanna til dómsmálaráðuneytisins kemur hins vegar fram að reglugerðin, sem ekki var sett í samráð, og framkvæmd Jafnréttisstofu gangi gegn þeim markmiðum.
„Það er ekki einföldun að láta fyrirtæki rífa upp kerfi sem hafa staðist hverja úttektina á fætur annarri og byggja þau upp aftur með nýrri og verri aðferð sem enginn einhugur ríkir um. Þvert á móti munu breytingarnar útheimta aukinn tíma og kostnað hjá bæði fyrirtækjum og stofnunum án þess að geta skilað haldbærri niðurstöðu. Ef markmið stjórnvalda var raunverulega að einfalda regluverk og draga úr kostnaði þarf að hugsa þessa framkvæmd upp á nýtt. Þá væri ekki úr vegi að ráðfæra sig við þá sem þekkja vel til áður en breytingum er hrint í framkvæmd,“ segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.
Sex úttektir án athugasemda duga ekki
Í erindinu er tekið dæmi af aðildarfyrirtæki sem hefur skilgreint yfir 160 starfsheiti í jafnlaunakerfi sínu. Kerfið hefur farið í gegnum sex vottunar- og viðhaldsúttektir án frávika eða athugasemda.
Samkvæmt erindinu þarf fyrirtækið engu að síður að ráðast í umfangsmikla endurgerð kerfisins vegna nýrra krafna um aðferðafræði við starfaflokkun. SA telja að með kröfum um heildstætt starfsmats- og stigakerfi séu lagðar ríkari skyldur á fyrirtæki en jafnréttislögin mæla fyrir um.
Mælikvarðarnir þurfa að standast skoðun
SA gera einnig athugasemdir við að 3,9% viðmið um launamun, sem kallar á áætlun um úrbætur, sé sótt í rannsókn Hagstofu Íslands. Aðferðafræði rannsóknarinnar sé frábrugðin þeirri sem fyrirtækjum er gert að nota við skýrslugjöfina og því sé ekki rökrétt að bera niðurstöðurnar saman með þessum hætti.
Samtökin leggja áherslu á að hvergi eigi að hvika frá markmiðum jafnréttislaga. Kynbundin launamismunun sé óásættanleg og feli í sér slæma stjórnarhætti. Krafa SA sé að aðgerðir stjórnvalda skili raunverulegum árangri og að loforð um einföldun verði efnd.