20. maí 2024

Blaða- og fréttamenn semja um stöðugleika

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Blaða- og fréttamenn semja um stöðugleika

Langtímasamningur hefur nú verið undirritaður milli annars vegar Samtaka atvinnulífsins og BÍ/Ríkisútvarpsins vegna Félags fréttamanna og hins vegar Samtaka atvinnulífsins og Blaðamannafélags Íslands. Byggja samningarnir á Stöðugleikasamningnum sem undirritaður var í mars við meirihluta félaga á almennum vinnumarkaði. Samningurinn gildir frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028.

Tengt frétt

Stöðugleikasamningur í höfn
Lesa meira

Stöðugleikasamningurinn styður markmið samningsaðila um minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Af því leiðir að kaupmáttur eykst, aukinn fyrirsjáanleiki verður í efnahagslífinu, dregið er úr verðbólguvæntingum og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs styrkist. Slíkur stöðugleiki er eitt stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja á óvissutímum.

Stöðugleiki kemur ekki af sjálfu sér

Stöðugleikasamningurinn markaði vatnaskil á vinnumarkaði þar sem hóflegum launahækkunum til fjögurra ára er ætlað að skapa skilyrði fyrir stöðugleika.

Stöðugleiki kemur hins vegar ekki af sjálfu sér þrátt fyrir góða niðurstöðu kjarasamninga. Horfa þarf fram á veginn og tryggja að kjarasamningar verði til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, en ekki öfugt. Atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Þannig er hægt að ná tökum á verðbólgunni og eygja von um lækkun vaxta.

Hér má kynna sér efni samninganna:

Samningur SA við Blaðamannafélag Íslands

Samningur SA og RÚV/BÍ vegna Félags Fréttamanna

Samtök atvinnulífsins